Hagar skiluðu 1,9 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa rekstrarárs, sem lauk 31. maí 2026, samanborið við 1,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Vörusala félagsins jókst úr 48,1 milljarði króna í 50,8 milljarða króna. Framlegð nam 13,3 milljörðum, eða sem nemur 26,2%, samanborið við 24,1% á fyrsta ársfjórðungi 2025. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 5,1 milljarði króna, samanborið við 4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi fyrra rekstrarárs. Eigið fé nam 44.741 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 37,7%. Að því er segir í tilkynningunni er bættur rekstur hjá Olís helsta skýringin á sterkri byrjun á rekstrarárinu, en það er að miklu leyti afleiðing tímabundinna áhrifa á afkomu viðskipta við stórnotendur vegna hækkandi heims-markaðsverðs olíu. Afkoma verslana og vöruhúsa á Íslandi styrkist einnig nokkuð milli ára en tekjur þeirra jukust um 6,4% og námu 35,7 milljörðum. Heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir á Íslandi fjölgaði um 1,3% og seldum stykkjum um 2,0%. Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 18.800-19.300 m.kr. Þrátt fyrir að rekstur hafi verið umfram áætlanir á fyrsta ársfjórðungi er afkomuspá stjórnenda ekki uppfærð að svo stöddu „Veruleg óvissa er um þróun á heimsmarkaði með olíu en olíuverð hefur farið lækkandi í byrjun annars ársfjórðungs. Því má gera ráð fyrir að jákvæð áhrif á afkomu Olís á fyrsta ársfjórðungi, vegna viðskipta við stórnotendur, munu að hluta ganga til baka en óljóst er hversu mikið og hversu hratt,“segir Finnur Oddsson, forstjóri félagsins, í tilkynningunni.