Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eina skipið sem sá þrjú þorskastríð

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 30.6.2026 | 18:30 Eina skipið sem sá þrjú þorskastríð Janúar 1960. Óðinn siglir inn í Reykjavíkurhöfn í fyrsta sinn. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar » Fleiri tengdar fréttir Varðskipið Óðinn á 20 ára eftirlaunaafmæli í ár. Skipinu var lagt árið 2006 eftir 46 ára þjónustu við Landhelgisgæsluna sem fagnar 100 ára afmæli á morgun. Nú hefur Óðni verið breytt í safn og er hluti af sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Það er þó engin safnstemning um borð þegar komið er niður í messann klukkan átta á mánudagsmorgni þar sem hressir Óðinsmenn eru að byrja daginn. Þeir hittast um borð á hverjum mánudagsmorgni en þeir eru meðlimir í Hollvinasamtökum Óðins sem hafa þá hugsjón og markmið að halda þessu gamla varðskipi haffæru. Þeir eru allir komnir á eftirlaun en margir þeirra voru í Landhelgisgæslunni og þó nokkrir þjónuðu um borð í Óðni. Undanfarin ár hafa þeir siglt á tiltekna staði á landinu og tekið þar þátt í minningarathöfnum um látna sjómenn. Endurgjaldslaust sjá þeir um öll verk um borð og verja í þágu skipsins hátt í 6.000 vinnustundum á ári til að halda sögu þess og merkjum Landhelgisgæslunnar á lofti. Um borð í Óðni rykfellur sagan ekki en vaskir sjálfboðaliðar í Hollvinasamtökum Óðins hittast reglulega og sinna nauðsynlegu viðhaldi. Morgunblaðið/Fjóla K. Guðmundsdóttir Nauðsynlegt að sigla Egill Þórðarson loftskeytamaður Óðins leiðir mig um ganga skipsins, upp í brú, í gegnum herbergi fullt af kortum og talstöðvum og inn í aflokaðan loftskeytaklefa Óðins. Þar er viðeigandi að setjast að spjalli við Egil í stólum klæddum bláum, íslenskum salúnsvefnaði frá miðri síðustu öld. Ég bið hann að staðfesta hvort rétt sé munað hjá mér að Óðinn sé síðasta skipið sem tók þátt í öllum þremur þorskastríðum. „Jú, það passar. Ægir og Týr voru seldir til Grikklands fyrir tveimur árum eða svo þannig að Óðinn er sá eini sem er eftir,“ segir Egill, en auk þess að vera loftskeytamaður er hann einnig varaformaður Hollvinasamtakanna. Þrátt fyrir að skipið sé rekið af sjálfboðaliðum þarf að standa straum af ýmsu viðhaldi. „Við höfum getað fengið frá fjárveitinganefnd nokkrar milljónir á ári en það byggist á því að við sjáum um alla vinnu sjálfir. Við fáum ekki peninga til að kaupa vinnu, heldur bara til að kaupa efni í viðhald eins og varahluti og málningu og slíkt,“ segir Egill. Að hans mati skiptir það sköpum að skipið sé áfram í notkun, þótt takmörkuð sé. „Það er algjört lykilatriði. Annars liggur ekki á að sinna viðhaldi og þá grotnar það bara niður.“ Með þessu móti er jafnframt hægt að viðhalda ákveðinni verkþekkingu sem annars tapast, því þegar nýir menn slást í hópinn þurfa þeir að tileinka sér vinnubrögð sem sum eru orðin söguleg. Egill Þórðarson loftskeytamaður og Vilbergur Magni Óskarsson skipherra störfuðu báðir á Óðni þegar skipið var enn í þjónustu. Morgunblaðið/Eggert Fullkomnasta björgunarskipið Enn þá eru þó margir í áhöfn Óðins sem hafa engu gleymt og sagan sú lifir góðu lífi í þeirra minningum. Það á meðal annars við um skipherra Óðins og formann Hollvinasamtakanna, Vilberg Magna Óskarsson, sem oftast er nefndur Magni. Þegar við Egill stígum fram úr loftskeytaklefanum og inn í kortaklefann stendur skipherrann sjálfur við sjókort með sirkil í hendi og mér líður sem ég horfi í gegnum glugga að öðrum tíma. Í ár sigldi Óðinn til Grundarfjarðar rétt fyrir sjómannadaginn og Magni er að mæla siglingaleiðina upp á gamla mátann. Hann lætur sirkilinn stika yfir sjóinn, skiptir á milli sjókorta og útskýrir að hann þurfi að skrifa niður punktana á leiðinni og leggja fjarlægðirnar saman. „Svona þurfti maður nú að gera þetta,“ segir hann við blaðamanninn, sem fylgist heilluð með. Varðskipið Óðinn siglir einu sinni á ári og heldur minningarathöfn í samstarfi við nýtt bæjarfélag hverju sinni. mbl.is/Eyþór Magni var sjálfur skipherra Óðins rétt fyrir aldamótin 2000 og þekkir vel til skipsins. „Þetta skip var afhent 1960 og var þá fullkomnasta björgunarskip á Norður-Atlantshafi,“ segir hann. „Það var byggt með svolítið öðru lagi en gert hafði verið áður. Gamli Þór var til dæmis líkur gömlum síðutogara.“ Hann útskýrir að Óðinn hafi verið mun lokaðri, sem gerði það að verkum að hann þoldi meira krefjandi aðstæður en fyrri skip. Meira skjól hafi verið fyrir áhöfnina og þá hafi skipsskrokkurinn verið smíðaður úr þykku stáli og hann styrktur til siglinga í ís. „Hann var líka mjög öflugur með stórar vélar og gat því dregið stærri skip.“ Magni tekur undir með Agli um mikilvægi þess að varðveita þennan minnisvarða um þorskastríðin þrjú. „Það stóð til að selja Óðin úr landi eða að láta rífa hann í brotajárn en það voru menn sem komu í veg fyrir það með Guðmund Hallvarðsson fremstan í flokki,“ segir Magni að lokum. „Sem betur fer því það má alveg segja að þetta sé það eina sem við eigum eftir af þessari sögu.“ Lengri útgáfu greinarinnar má lesa í sérblaði 200 mílna . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Segir Watson vera elítuaktívista Hyggst ekki semja um sjávarútveginn „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Ráðgjöf í Barentshafsþorski hækkar um 16% Paul Watson á leið til landsins Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu Ráðgjöf í Barentshafsþorski hækkar um 16% Þorskverð 40% hærra Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Paul Watson á leið til landsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Moby hnýtir í Kristján Loftsson Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Fleira áhugavert Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Tengja kyrkingartak við óútskýrðan heilsubrest Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.6.26 691,42 kr/kg Þorskur, slægður 30.6.26 713,41 kr/kg Ýsa, óslægð 30.6.26 732,77 kr/kg Ýsa, slægð 30.6.26 785,69 kr/kg Ufsi, óslægður 30.6.26 304,91 kr/kg Ufsi, slægður 30.6.26 463,49 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 30.6.26 290,33 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.6.26 Axel NS 15 Handfæri Þorskur 794 kg Samtals 794 kg 30.6.26 Toni NS 20 Landbeitt lína Þorskur 2.795 kg Ýsa 719 kg Hlýri 56 kg Steinbítur 42 kg Keila 40 kg Samtals 3.652 kg 30.6.26 Öðlingur SU 191 Handfæri Þorskur 781 kg Ufsi 62 kg Samtals 843 kg 30.6.26 Gullbrandur NS 31 Handfæri Þorskur 739 kg Samtals 739 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Segir Watson vera elítuaktívista Hyggst ekki semja um sjávarútveginn „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Ráðgjöf í Barentshafsþorski hækkar um 16% Paul Watson á leið til landsins Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu Ráðgjöf í Barentshafsþorski hækkar um 16% Þorskverð 40% hærra Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Paul Watson á leið til landsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Moby hnýtir í Kristján Loftsson Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Fleira áhugavert „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Staða Íslands ekki mjög sterk Sæbrautarstokkur forsenda Borgarlínu 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.6.26 691,42 kr/kg Þorskur, slægður 30.6.26 713,41 kr/kg Ýsa, óslægð 30.6.26 732,77 kr/kg Ýsa, slægð 30.6.26 785,69 kr/kg Ufsi, óslægður 30.6.26 304,91 kr/kg Ufsi, slægður 30.6.26 463,49 kr/kg

Share this article