Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Atvinnulífi gert hærra undir höfði

Read Full Article →

„Það er auðvitað löngu kominn til að atvinnulífi sé gert hærra undir höfði í höfuðborginni,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Við Sjálfstæðismenn höfum lengi lýst yfir áhyggjum af því að stór fyrirtæki og stofnanir hafi flutt höfuðstöðvar sínar úr höfuðborginni yfir í nágrannasveitarfélög. Þessari þróun vill nýr meirihluti snúa við enda teljum við að í höfuðborginni eigi að þrífast blómlegt atvinnulíf og nýsköpunarstarf.“ Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar í Reykjavíkurborg er þegar farinn að láta til sín taka. Í síðustu viku var á annan tug starfsmanna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara sagt upp störfum. Aðgerðin ætti ekki að koma á óvart enda boðar meirihlutinn fækkun millistjórnenda og að dregið verði úr yfirbyggingu innan raða borgarinnar á verkefnalista sínum. Síðustu meirihlutar í borginni, þar sem Dagur B. Eggertsson var lengstum borgarstjóri, hafa hlotið töluverða gagnrýni fyrir að huga ekki nægilega að hagsmunum atvinnulífsins í borginni. Miðað við fjölda mála sem snúa beint eða óbeint að atvinnulífi í borginni á verkefnalistanum verður breyting þar á. Endurspeglast það m.a. í markmiði um að fjölga atvinnulóðum og styðja við sókn atvinnulífs í borginni. Hildur kveðst ekki einungis hafa orðið vör við ákall frá borgarbúum um breytta stjórnunarhætti í borginni heldur einnig atvinnulífinu. Fólk og fyrirtæki hafi fengið sig fullsödd af ráðríki fyrri meirihluta. „Gott dæmi um þetta eru málefni Suðurlandsbrautar þar sem fyrri meirihluti steig fram með tillögu að nýju skipulagi sem var þvert á vilja og þarfir atvinnulífsins. Skipulagið var einnig þvert á hagsmuni íbúa Laugardals því ef þrengt er að umferð á Suðurlandsbraut með þeim hætti sem lagt var upp með er fyrirséð að umferðin færist inn í hverfið. Við höfum þegar hafnað þessari tillögu og ætlum að vinna nýja tillögu að framtíðarskipulagi í samráði við hagaðila á svæðinu. Við þurfum að standa vörð um verslun, þjónustu, íbúa og atvinnulífið í heild kringum Suðurlandsbraut.“ Lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði Á verkefnalista nýs meirihluta er alls að finna 190 verkefni sem skiptast niður á hina ýmsu málaflokka. Tímalínan sem meirihlutinn gefur sjálfum sér til að klára hvert verkefni eru hundrað dagar, tólf mánuðir og fjögur ár. Á næstu tólf mánuðum ætlar meirihlutinn að ráðast í ýmsar aðgerðir tengdar atvinnulífi. Ber þar fyrst að nefna lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði en um árabil hafa atvinnurekendur og fulltrúar þeirra gagnrýnt hátt álagningarhlutfall Reykjavíkurborgar, sem stendur í dag í 1,6% af fasteignamati og er hærra en í nágrannasveitarfélögum. Nýr meirihluti hyggst ekki aðeins lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði heldur einnig íbúðarhúsnæði. „Sjálfstæðisflokksins hefur um langt skeið lagt það til árlega að borgin bregðist við hækkandi fasteignamati með því að lækka sín álagningarhlutföll þannig að krónutala fasteignaskatta, að teknu tilliti til verðlagsþróunar, fari ekki hækkandi milli ára. Að sjálfsögðu hvikum við ekki frá því markmiði en það sem er þó óvenjulegt að þessu sinni er að fasteignamat kemur ekki til með að hækka mikið um næstu áramót. Það leiðir til þess að það verður raunlækkun á tekjum af fasteignasköttum á næsta ári. Markmið okkar á kjörtímabilinu er eftir sem áður að lækka álagningarhlutfallið,“ segir Hildur en bendir um leið á að ekki sé tímabært að huga að skattalækkunum fyrr en tekjur borgarinnar standa undir kostnaði. „Fyrri meirihlutar höfðu ekki mikinn vilja til að taka til í rekstri borgarinnar. Tekjur hafa á síðustu árum vaxið gríðarlega en útgjöld því miður vaxið enn hraðar. Við ætlum að ganga rösklega til verks í þessa nauðsynlegu tiltekt, m.a. með því að minnka yfirbygginguna og draga úr sóun, til þess að geta sinnt lögbundinni grunnþjónustu og vonandi til lengri tíma lækkað skatta.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér og blaðið hér .

Share this article