Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti sigur Mexíkóa í útsláttarkeppni á HM í 40 ár

Read Full Article →

Mexíkó vann Ekvador 2-0 í leik liðanna í 32- liða úrslitum í Mexíkóborg í nótt. Leikur Mexíkó og Ekvador átti að hefjast klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma en var frestað um klukkustund vegna hættu á eldingum. En seinkunin var ekki meiri og flautað var til leiks klukkan tvö. Lið Mexíkó var sterkara allan tímann en lék þó mun betur í fyrri hálfleik. Julian Quinones skoraði fyrsta markið á 22. mínútu og rétt tæpum níu mínútum síðar skoraði Raul Jimenez seinna mark Mexíkóa. Á 95. mínútu fékk Piero Hincapie rautt spjald fyrir að hylja munn sinn þegar hann talaði við mótherjann. Þetta er í annað sinn á HM í ár sem rautt spjald fer á loft fyrir þetta athæfi. Reglan var sett á í kjölfar umdeilds atviks í Meistaradeild Evrópu í vor og því er þetta fyrsta heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem henni er framfylgt. Dómarar fá hins vegar að meta hvort að samskiptin hafi verið vinaleg eða ekki. Það var þó ekki í þetta sinn og Hincapie var því rekinn af velli. Mexíkóar voru á heimavelli og því mikið stuð í stúkunni. Sigrinum var dátt fagnað af stuðningsmönnum en þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem Mexíkó vinnur í útsláttarkeppni á HM. Það skýrist svo síðar í dag hverjir verða næstu mótherjar Mexíkóa þegar Lýðstjórnarlýðveldið Kongó mætir Englandi klukkan 16:00. Sigurvegarinn í þeim leik verður næsti mótherji Mexíkóa.

Share this article