Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lætur neikvæðni barna ekki stoppa sig

Read Full Article →

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir rangt að ekki hafi verið tekið mið af tillögum ungmenna sem tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum. Inga segir að vegna þeirrar neikvæðni sem hún hafi upplifað séu líkur á því að börn verði ekki höfð með í ráðum næst. Fulltrúar Ungheilla, raddar unga fólksins hjá Barnaheillum, sökuðu Ingu Sæland um sýndarsamráð í Morgunútvarpinu í gær. Þau, ásamt hópi ungmenna um allt land, tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum og lögðu fram ýmsar tillögur. Ráðherra hafði talað um mikilvægi þess að fá raddir barnanna í umræðuna og notað orðin „Ekkert um ykkur án ykkar“. Inga segir miður að ungmennin upplifi málið á þennan hátt. „Ég held að það hafi nú ekki margir upplifað vinnustofuna svona og mér þykir miður ef svo hefði verið,“ sagði Inga í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Hugmyndina að vinnustofunni segir Inga hafa fæðst er hún hitti fulltrúa ungmennaráðs Samfés. Ungmennin hafi þar komið með þá hugmynd að fulltrúar ungu kynslóðarinnar fengju að vera í samráði um símabannið og í framhaldi af því samtali hafi vinnustofan verið haldin. Fulltrúar Ungheilla segja að engar tillögur úr vinnustofu barna hafi ratað inn í drög reglugerðarinnar. Inga segist engan veginn tengja við þá upplifun barnanna. „Þau vilja geta hlegið saman og leikið sér saman í frímínútum og það er í rauninni það sem kom út úr vinnustofunni.“ Inga segist gjarnan vilja halda því áfram að leyfa börnum að koma að málefnum sem snúi að þeim, hins vegar hafi „neikvæðni“ fulltrúa Ungheilla ekki hrifið hana. „Þá kemur maður bara áfram með reglugerðina eins og ráðherrar eru vanir, án þess að tala við kóng né prest.“ Spurð hvort hún hyggist þá alfarið hætta að hleypa börnum að borðinu, gagnrýni þau vinnubrögð ráðuneytisins, segir Inga að svo sé ekki, gjarnan vilji hún halda áfram góðu samstarfi. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér í spilaranum fyrir neðan. Barna- og menntamálaráðherra segir rangt að ekki hafi verið tekið tillit til tillaga ungmenna sem tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum. Fulltrúaar Ungheilla saka ráðherra um sýndarsamráð.

Share this article