Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá meira en 1,4 milljörðum dala, eða um 178 milljörðum íslenskra króna, í tekjur af rafmyntaverkefnum fjölskyldunnar á síðasta ári, samkvæmt fjárjagsupplýsingum sem birtar voru í gær. Þar sést að stafrænar eignir (e. digital assets), sem hafa undanfarið notið góðs af stefnu stjórnvalda, eru nú stærsti tekjustofn forsetans. Þetta kemur fram í frétt Reuters. Fyrirtæki í eigu Trumps öfluðu tæpum 800 milljónum dala, eða sem nemur um 101 milljarði króna, frá World Liberty Financial, rafmyntafélags sem hann stofnaði ásamt sonum sínum. Trump greindi einnig frá 635 milljónum dala í tekjur af sölu Trump-rafmmyntarinnar sem sett var á markað skömmu áður en að Trump tók við embætti forseta. Reuters hefur áður áætlað að Trump-fjölskyldan hafi hagnast um að minnsta kosti 2,3 milljarða dala á rafmyntaverkefnum frá því Trump sneri aftur í Hvíta húsið árið 2025. Trump hefur frá þeim tíma innleitt stefnumál og aðgerðir hagfelld rafmyntageiranum og dregið úr hamlandi aðgerðum dómsmálaráðuneytisins og verðbréfaeftirlitsins. Önnur fyrirtæki Trumps gerðu það einnig gott á síðasta ári. Tekjur af golfvöllum og dvalarstöðum í eigu forsetans jukust um 15% í rúmlega 500 milljónir dala. Þá greindi Trump frá rúmlega 80 milljónum dala í sáttagreiðslur frá fjölmiðlafyrirtækjum og 52 milljónum dala í tekjur af fasteignaleyfum erlendis.