Forsvarsmenn álvers Rio Tinto í Straumsvík segja fyrirtækið munu veita lögreglu alla þá aðstoð sem óskað verði eftir, eins og gert hafi verið hingað til, vegna rannsóknar á smygli á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi í Straumsvíkurhöfn fyrir rúmri viku. Fyrirtækið muni jafnframt fara vel yfir málið sín megin. „Okkur í Straumsvík er brugðið vegna þessa máls,“ segir í yfirlýsingu sem fréttastofa fékk senda frá upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, en þar er tekið fram að tollgæsla og eftirlit með smygli sé á hendi lögreglu og tollgæslu. Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði við fréttastofu í gær að enginn grunur væri um að starfsmenn í Straumsvík tengdust málinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu sendu forsvarsmenn fyrirtækisins tölvupóst á alla starfsmenn þar sem það var áréttað. Skipstjórinn gaf vitnaskýrslu Níu manns eru í gæsluvarðhaldi – þrír Íslendingar og sex útlendingar, þeirra á meðal Brasilíumenn og Rúmeni. Enginn þeirra var skipverji á súrálsskipinu, sem heitir Koznitza, er starfrækt af búlgarska skipafyrirtækinu Navibulgar og siglir undir maltneskum fána. Koznitza kom í Straumsvík klukkan 11 fyrir hádegi mánudaginn 22. júní, eftir tæplega þriggja vikna siglingu frá Brasilíu. Þar hafði það verið í tvo og hálfan sólarhring í höfninni Vilo da Conde í bænum Barcarena, sem er í úthverfi borgarinnar Belém í Norður-Brasilíu, við ósa Pará-fljóts. Þaðan sigldi skipið, með 106 kíló af kókaíni falin í sjókistunni á kilinum, um klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt 2. júní. Hvað er sjókista? Sjókista er sjóinntak sem er byggt inn í kjölinn á skipum. Hún safnar sjó og sér um að dreifa honum til þeirra kerfa um borð sem þurfa á honum að halda, til dæmis kælikerfa fyrir vélar og loftkælingu, slökkvikerfa og kjölfestukerfa (ballastkerfa). Þessi hólf geta verið mjög misjöfn að stærð eftir stærð skipa, allt frá því að vera á stærð við lítinn ísskáp eða kommóðu og upp í heilt herbergi sem hægt er að ganga um. Að utanverðu eru sjókistunum jafnan lokað með rist eða sigti til að koma í veg fyrir að inn í þau safnist rusl eða sjávarfang sem getur stíflað dreifingarleiðirnar. Skipið lá við bryggju í Straumsvík frá mánudeginum 22. júní til sunnudagsins 28. júní. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var vitnaskýrsla tekin af skipstjóranum áður en það hélt úr höfn áleiðis til Kotka í Finnlandi, en það er nú á Norðursjó miðja vegu milli Skotlands og Noregs.