Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bilið minnkar milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins

Read Full Article →

Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að aukast. Flokkurinn mælist með 24,9% fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Þetta er mesta fylgi sem hann hefur mælst með í könnun frá því í apríl 2020 þegar fylgið var 25,1%. Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn í könnuninni, með 26,2% fylgi. Munurinn á fylgi flokkanna er þó innan skekkjumarka. Fylgi Miðflokksins dregst enn saman. Flokkurinn mælist með 15,1% og dregst saman um tvö og hálft prósentustig milli mánaða. Fylgi flokksins hefur minnkað um tæp sjö prósent frá það náði hápunkti í desember . Viðreisn mælist með 11,4% fylgi. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar nokkuð milli mánaða og fer úr 6,7% í 5,3%. Vinstri græn mælast með 5,0% fylgi og myndi það duga flokknum til að ná þremur mönnum á þing. Flokkur fólksins mælist utan þings, rétt eins og í síðasta mánuði, en fylgi flokksins er 4,6%. Þá eykst stuðningur við Sósíalistaflokkinn nokkuð og fer hann úr 2,6% í 4,3%. Alls segist 51% aðspurðra styðja ríkisstjórnina og eykst stuðningur um tvö prósentustig milli mánaða. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna dregst þó saman um eitt prósentustig og mælist 42%. Þjóðarpúls júní 2026 Könnunin var gerð dagana 1.–30. júní 2026. Heildarúrtak var 12.102 og þátttökuhlutfall 38,5%. Vikmörk á fygi flokka eru 0,5 til 1,4 prósentustig. Þátttakendur eru valdir af handahófi úr viðhorfahópi Gallups. Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar .

Share this article