Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hækkuðu álagningu á eldsneyti í aðdraganda kílómetragjalds

Read Full Article →

Álagning á lítrann af díselolíu hefur hækkað um 50% að raunvirði og um 25% á bensínlítrann frá árinu 2022. Álagning á bæði bensín og díselolíu hækkaði í samanburði við önnur Evrópulönd í aðdraganda upptöku kílómetragjalds um áramótin. Af því tilefni var olíugjald á bensíni lagt niður með þeim afleiðingum að bensínlítrinn lækkaði um u.þ.b. 90 krónur. Samkeppniseftirlitið (SKE) segir aftur á móti að olíufélögin hafi aukið álagningu sína í aðdraganda þessara breytinga, í samanburði við önnur Evrópulönd. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju umræðuskjali SKE um eldsneytismarkaðinn. Stofnunin segir eldsneytismarkaðinn á Íslandi bera þess merki að olíufélögin fylgi keppinautum sínum í verðlagningu og séu í aðstæðum til að nýta sér þegjandi samhæfingu sem sé dæmigerð á fákeppnismarkaði. Sé miðað við Brent-olíuverð, sem er viðmiðunarverð á hráolíu á heimsmarkaði, segir SKE að á þessu ári hafi innlent eldsneytisverð fylgt vel hækkun á heimsmarkaðsverði en ekki þeirri skörpu lækkun sem varð frá því í miðjum mars. Sumir hækkuðu bensínverð í lok apríl Eldsneytisverð lækkaði aftur 1. maí þegar virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið til að bregðast við hækkun olíuverðs vegna lokunar Hormússunds, úr 24% í 11%. Í umræðuskjalinu er bent á að nokkur félög hafi hækkað bensínverð í blálok apríl en SKE leitar nú skýringa á því. Breytingin 1. maí virðist þó hafa skilað sér að mestu leyti hjá öllum félögum. Lækkunin í bensínverði virðist vera aðeins minni hjá einu félagi en SKE leitar einnig skýringa á því. Félögin eru ekki nafngreind í skjalinu. Niðurfelling opinberra gjalda skilaði sér í meginatriðum Það sama virðist vera uppi á teningnum í verði á díselolíu. Niðurfelling opinberra gjalda skilaði sér í meginatriðum um áramótin en bent er á að álagning hafi hækkað í samanburði við önnur lönd í aðdragandanum. Þá hækkaði verðið í blálok apríl hjá sumum olíufélögum og er verið að leita skýringa á því. Lækkun díselverðs skilaði sér þó í öllum tilvikum 1. maí. SKE er heimilt að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem tryggja ekki að lækkunin 1. maí skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Sem fyrr segir hefur álagning á bæði díselolíu og bensín hækkað mikið frá 2022. Álagning á dísellítrann var um langt tímabil 40-50 krónur á lítrann en er nú 60 krónur. Álagning á bensínlítrann hækkaði að meðaltali úr rúmum 50 krónum á lítra árið 2022 í tæplega 65 krónur í mars 2026. Viðvarandi hærra verð á Íslandi Bensínverð án opinberra gjalda hefur verið viðvarandi hærra á Íslandi en í 27 öðrum Evrópuríkjum árin 2017-2026 samkvæmt umræðuskjalinu. SKE bendir á að munurinn hafi þó aukist frá árinu 2022. Verð á eldsneyti hækkaði þegar allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hófst árið 2022. Eftir að bensínverð tók að lækka gerðist það ekki með sama hætti á Íslandi og annars staðar í Evrópu. „Og hefur haldist viðvarandi hærra,“ segir í umræðuskjalinu. Díselverð segir SKE að sé einnig marktækt hærra á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd. Einkum hefur verðmunur á lítranum aukist frá 2022 miðað við samanburðarlönd og álagning aukist.

Share this article