Því var ákaft fagnað þegar Hernán Alberto Gil Flores var bjargað úr húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela í dag. Hundruð björgunarliða frá sjö löndum unnu að björguninni. Hernán Alberto Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku. Manni sem hundruð björgunarliða unnu saman að því að ná undan húsarústum í Venesúela hefur verið bjargað. Hann var fastur í nær 8 sólarhringa undir rústunum. Björgunarsveitir höfðu náð sambandi við hann og fært honum vatn. Björgunin var flókin og tók nokkra sólarhringa. Í morgun komust björgunarliðar í um metra fjarlægð frá honum og eftir hádegi náðu þeir honum undan rústunum. Hann var fluttur umsvifalaust á sjúkrahús. Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað.