- What: 292 emergency room visits by homeless individuals
- Impact: Highlights patterns in emergency care usage by homeless population
Innlent | mbl | 2.7.2026 | 16:16 Leitaði 292 sinnum á bráðamóttöku Landspítala Bráðamóttakan í Fossvogi. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Einn heimilislaus einstaklingur leitaði 292 sinnum á bráðamóttöku Landspítala á fimm ára tímabili. Meðalfjöldi koma á heimilislausra einstaklinga var 15 komur á einstakling. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í rannsókn Rótarinnar á bráðaþjónustu við heimilislausa einstaklinga. Rannsóknin náði yfir fimm ára tímabil frá árinu 2020. Rannsóknarhópurinn var afmarkaður þeim einstaklingum sem nýttu sér gistiskýli Reykjavíkurborgar á tímabilinu og sóttu bráðaþjónustu á Landspítala. Tæplega 60% hópsins leituðu á bráðamóttökur spítalans á tímabilinu, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur heimilislausra á bráðamóttöku voru á tíma dags þegar neyðarskýli borgarinnar eru lokuð en skýlin loka klukkan 17 og opna aftur 10. Rúmlega sjö klukkustundir á bráðamóttöku Meirihluti, eða 72%, leitaði á bráðamóttöku í Fossvogi en 27% í geðþjónustu við Hringbraut. 169 heimilislausar konur áttu samtals 3.027 heimsóknir á bráðamóttöku en þær dvöldu að meðaltali í 7,1 klukkustund á bráðamóttöku. Algengustu ástæður komu kvenna á bráðamóttökur Landspítala voru andleg vanlíðan, verkir og kviðverkir, sýkingar, slappleiki, líkamsárás, lyfjaeitrun og áfengis- eða fíkniefnavandi. Karlar komu oftast vegna verkja, andlegrar vanlíðanar, sýkingar eða fíkniefnavanda. Kostnaður upp á 4,6 milljarða Heildarkostnaður vegna koma á bráðamóttökur án innlagnar nam um 645 milljónum króna á rannsóknartímabilinu. Kostnaðurinn tengist aðallega geðröskunum. Heildarkostnaður vegna innlagna, að meðtöldum tíma á bráðamóttöku, nam um 4,6 milljörðum króna á rannsóknartímabilinu. Í tilkynningu frá Rótinni segir að niðurstöður rannsóknarinnar bendi til þess að markviss fjárfesting í samþættri þjónustu, lágþröskuldarúrræðum í heilbrigðisþjónustu og húsnæðismiðuðum lausnum geti bæði bætt lífsgæði fólks og stuðlað að hagkvæmari nýtingu heilbrigðiskerfisins. „Niðurstöðurnar opna á tækifæri fyrir kerfið til að gera betur í þjónustu við þennan jaðarsetta hóp, bæta þjónustuna, skýra verkferla og þar með lækka kostnað.“ Rannsóknarskýrslan hefur verið send heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og forstjóra Landspítala til áframhaldandi stefnumótunar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hantaveirufaraldrinum lokið Hvalur 8 og 9 úti á veiðum Bjargað eftir átta daga leit Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Prinsessan sló í gegn í blárri dragt á Wimbeldon Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Skúraveður með hagléljum og eldingu Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir 17 látnir eftir stærstu áras á Kænugarð frá upphafi Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Drengurinn fundinn heill á húfi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Hantaveirufaraldrinum lokið Hvalur 8 og 9 úti á veiðum Bjargað eftir átta daga leit Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Prinsessan sló í gegn í blárri dragt á Wimbeldon Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjargað eftir átta daga leit Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Bandero áfram vestan við landið Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Drengurinn fundinn heill á húfi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið