Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loka hluta Laugardalslaugar og undirbúa niðurrif stúkunnar

Read Full Article →

Fimm pottum sunnan stúku Laugardalslaugar auk gufubaðs og tveimur sérklefum af fjórum verður lokað um ófyrirséðan tíma frá og með deginum í dag. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að niðurstaða nýs áhættumats vegna stúkunnar við laugina kalli á tafarlausa lokun skilgreindra svæða. Ástand mannvirkisins er metið mjög bágborið sökum alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki. Öll þjónusta og viðvera innan stúkunnar verður færð annað og umferð umhverfis hana takmörkuð. Önnur starfsemi Laugardalslaugar verður með óbreyttum hætti. Úttektir benda ekki til þess að heildarhrun stúkunnar sé yfirvofandi en engu að síður eru metnar líkur á að brotnað geti úr henni, segir í tilkynningu. Samhliða því að tryggja öryggi kringum stúkuna er verið að undirbúa niðurrif á byggingarhlutum sem taldir eru skapa áhættu. Lengi vitað af bágbornu ástandi stúkunnar Fjallað var um bágborið ástand stúkunnar í fréttum árið 2019 en þá hafði henni ekki verið haldið við í að verða tuttugu ár. Forstöðumaður laugarinnar sagði af því tilefni að ástæðan væri mikill kostnaður. Árið 2024 gerði Verkfræðistofa Reykjavíkur úttekt á ástandi stúkunnar þar sem burðarþol áhorfendapalla og skyggnis var greint. Í úttektarskýrslunni segir að glöggt megi sjá útfellingar sem stafi af rakastreymi í gegnum plötur stúkunnar. Var þá mat höfunda skýrslunnar að þrátt fyrir skerta burðargetu væri ekki hætta á hruni en að hættulegt geti verið að umgangast mannvirkið. Hluta Laugardalslaugar verður lokað í ófyrirséðan tíma frá og með deginum í dag. Ástand stúkunnar við laugina er metið mjög bágborið og taldar líkur á því að brotnað geti úr henni. Á árum áður var stúkan þó vel nýtt, ekki aðeins til að fylgjast með keppni í sundi heldur einnig til að sóla sig, eins og sjá má á þessu myndefni frá 1974. Hluta Laugardalslaugar verður lokað í ófyrirséðan tíma frá og með deginum í dag. Ástand stúkunnar við laugina er metið mjög bágborið og taldar líkur á því að brotnað geti úr henni.

Share this article