Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kia PV5 mest seldi sendibíllinn

Read Full Article →

Kia PV5 er nú mest seldi sendibíllinn á Íslandi, óháð orkugjafa, það sem af er ári. Ef PV5 endar árið með flestar nýskráningar í flokki sendibíla verður það í fyrsta skipti sem alrafmagnaður sendibíll verður sá mest seldi á Íslandi. Samkvæmt tilkynningu frá Inchcape á Íslandi hefur Kia PV5, sem kynntur var í byrjun árs 2026, notið mikilla vinsælda og sankað að verðlaunum á heimsvísu. PV5 Cargo var til að mynda valinn sendibíll ársins 2026 hjá Van of the Year og PV5 Passenger var valinn fjölskyldubíll ársins 2026 hjá Top Gear. Sjá einnig Fjölskyldubíll ársins hjá BBC Top Gear Þar að auki fékk PV5 hönnunarverðlaun iF Design Awards fyrir framúrskarandi bílahönnun sem þykir ein mesta viðurkenning í heimi á sviði hönnunar. Jafnframt setti Kia PV5 Guinness heimsmet í drægni í flokki sendibíla. „Við áttuðum okkur snemma á því að PV5 væri einstakur bíll. Sterk viðbrögð á heimsvísu endurspegla viðtökur hans hér á landi. Hann sameinar fjölhæfni og notagildi með góðri drægni og framúrskarandi aðgengi á samkeppnishæfu verði,” segir Jón Þór Eggertsson, verkefnastjóri Kia PBV atvinnubíla á Íslandi. Sjá einnig Kia PV5 í heims­meta­bók Guin­ness fyrir heims­met í drægni PV5 er fyrsti sendibíllinn í alrafmagnaðri PBV-línu Kia en fleiri bílar eru væntanlegir og má þar nefna stærri PV7 sem kemur 2027 til Íslands.

Share this article