Innlent | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 23:39 „Alveg fram í rauðan dauðann“ Guðmundur M. Kristjánsson bjó í um þrjú ár á Grænhöfðaeyjum. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Guðmundur M. Kristjánsson hefur gerst víðförull í störfum sínum sem skipstjóri en hann hefur unnið á sjó frá 15 ára aldri, fyrst í Bolungarvík. Hann er einn af örfáum Íslendingum sem hafa búið bæði í Argentínu og á Grænhöfðaeyjum. Eins og fram kom hér að ofan bjó Guðmundur, sem einnig er kallaður Muggi, í borginni Mindelo á São Viçente, einni af Grænhöfðaeyjunum. Í Argentínu bjó hann í borginni Puerto Madryn í Patagóníu. Guðmundur ræddi við Morgunblaðið vegna leiks Grænhöfðaeyja og Argentínu á HM í fótbolta á morgun en hann er ómyrkur á máli spurður um hvort liðið hann muni styðja. „Mannlíf gott“ „Ég verð að halda með Grænhöfðaeyjum, alveg fram í rauðan dauðann. Þar þekki ég fleiri en í Argentínu.“ Á Grænhöfðaeyjum bjó Guðmundur líka lengur, eða í um þrjú ár, 1984 til 1986. Í Patagóníu var hann í um eitt og hálft ár rétt fyrir aldamótin, á árunum 1997 til 1998, og starfaði þar einnig í verkefni sem snerist um að þjálfa fiskimenn, rétt eins og á Grænhöfðaeyjum. „Þetta var í framhaldi af því að Trefjar í Hafnarfirði smíðuðu sex báta fyrir fyrirtæki niðri í Patagóníu og þetta verkefni gekk út á að þjálfa áhafnir á þá báta.“ Hann segir að mjög gott hafi verið að búa á báðum stöðum. „Þarna á Grænhöfðaeyjum býr gott fólk og já, mannlíf er gott, þrátt fyrir mikla fátækt.“ Guðmundur bjó með fjölskyldu sinni á Grænhöfðaeyjum og þar var með honum sonur hans, tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson eða Mugison. Faðirinn segist aðspurður ekki hafa stundað fótbolta af neinu viti sjálfur, annað en strákurinn, sem þá var rétt undir tíu ára aldri. „Hann spilaði fótbolta við strákana í hverfinu. Við bjuggum í nýlegri blokk inni í miðju fátækrahverfi. Hann átti marga vini þarna og spilaði við þá fótbolta,“ segir Guðmundur og bætir við: „Ég var bara sjóari“ Guðmundur var ráðinn á Þróunarsamvinnustofnun Íslands til Grænhöfðaeyja og bjó þar, eins og áður segir, í um þrjú ár með einu nokkurra mánaða hléi til að læra tungumálið betur í Portúgal. Guðmundur fær fleiri spurningar um fótboltann og er spurður að því hvort hann hafi sjálfur gert sér ferð á fótboltaleik í Argentínu á sínum tíma. „Það má nú kannski segja um mig að ég er ekki að eltast við fótbolta þar sem ég fer um heimsins höf.“ Argentínumenn eru, eins og flestir vita, mikil knattspyrnuþjóð en það eru Grænhöfðeyingar líka. Guðmundur segist þó sjá meiri líkindi milli Grænhöfðaeyja og annarrar fótboltaþjóðar í Suður-Ameríku. „Maður sér mikil líkindi á milli fólksins á Grænhöfðaeyjum og í Brasilíu, það er portúgalskan og sambatakturinn í fótunum,“ segir hann en Brasilía mætir nágrönnum okkar, Norðmönnum, í 16 liða úrslitum á sunnudag. Spurður um hvort Guðmundur hafi trú á Grænhöfðaeyjum segir hann allt geta gerst. „Já, kannski. En ef maður ætlar nú að vera raunsær þá hafa þeir kannski ekki mikla möguleika. En allt getur skeð í þessum fótbolta, er það ekki? Maður veit aldrei,“ segir hann að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Bara fjórir litlir gaurar með einum risa“ Portúgal – Króatía, staðan er 0:0 „Alveg fram í rauðan dauðann“ „Föllum á varnarleiknum í kvöld“ Grænhöfðeyingar standa saman Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samruninn hefði skapað hættu á þögulli samhæfingu Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Bjargað eftir átta daga leit Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » „Bara fjórir litlir gaurar með einum risa“ Portúgal – Króatía, staðan er 0:0 „Alveg fram í rauðan dauðann“ „Föllum á varnarleiknum í kvöld“ Grænhöfðeyingar standa saman Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Bandero áfram vestan við landið Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið