Veðrið verður með rólegra móti í dag, hitastig verður um eða rétt undir frostmarki og vindur víðast skaplegur. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðlæg átt þrír til tíu metrar á sekúndu, en átta til þrettán austast. Él norðan- og austanlands, en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Lægir seint í kvöld. Hæg breytileg átt og bjart að mestu á morgun, en stöku él fyrir norðan og austan. Hægt vaxandi austanátt síðdegis, 5-13 m/s annað kvöld, en 13-18 við suðurströndina. Frost yfirleitt 0 til 5 stig að deginum.