Innlent | mbl | 3.7.2026 | 10:22 Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Lagt var hald á mikið magn af kókíni í júnímánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Dæmdur morðingi sagður í haldi Ekki búsettir hér á landi Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin » Fleiri tengdar fréttir Yfirlæknir á Vogi segir það hingað til ekki hafa haft merkjanleg áhrif á framboð á fíkniefnum þegar lögregla hefur lagt hald á stórar sendingar sem reynt hefur verið að smygla hingað til lands. Það eigi hins vegar eftir að koma í ljós hvort það að lögregla hafi lagt hald á samtals 177 kíló af fíkniefnum í tveimur stórum sendingum í júnímánuði, þar af 106 kíló af kókaíni, eigi eftir að hafa áhrif á næstu mánuðum. Um 300 til 400 manns á aldrinum 25 til 45 ára koma í meðferð á Vogi á hverju ári með kókaínfíkn, en þeim hefur fjölgað síðustu ár sem leita sér meðferðar vegna þeirrar fíknar. Skjólstæðingum með kókaínfíkn fækkaði hins vegar í kjölfar hrunsins og eftir Covid. Frétt af mbl.is Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Viðhorfið hefur breyst Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, segir að kókaín sé oft stór hluti af neyslu þeirra sem eru með fíknisjúkdóm, en hún telur að margt fólk sem ekki sé með fíknisjúkdóm noti efnið líka. Þeir einstaklingar komi hins vegar ekki á Vog. „Þeir sem koma til okkar og eru að nota kókaín eru alls konar fólk. Einn hópurinn er fólk sem er eingöngu með þetta vandamál og eru bara svona venjulegir samfélagsþegnar, en að missa allt frá sér. En svo er líka fólk sem er að nota kókaín með mikilli annarri neyslu, þannig að þetta er hluti af því. Þetta er yfirleitt blönduð neysla .“ Hún bendir á að áfengisneysla hafi aukist á Íslandi síðustu misseri og að margir noti kókaín samhliða. „Við erum kannski að breyta okkar viðhorfum gagnvart áfengi og vímuefnum sem er ekki gott ef að er verið að gera það léttvægara en það er.“ Í því samhengi bendir hún á að nikótínfíkn hafi aukist verulega en það sé ekki af því að fíknisjúkdómafaraldur hafi riðið yfir, heldur hafi orðið viðhorfsbreyting. „Af hverju fólk fer að nota efnið og auðvitað lenda margir í vandræðum með það og það er sama með þetta, kókaínið og áfengið líka.“ Valgerður Á. Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi. mbl.is/Árni Sæberg Frétt af mbl.is Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin Grammið á 15 til 25 þúsund Í gegnum tíðina virðist það ekki hafa haft mikil áhrif á framboðið að lögregla hafi lagt hald á stórar sendingar af fíkniefnum. Verðið á gramminu á kókaíni hefur til að mynda haldist nokkuð svipað síðustu tuttugu ár, eða á bilinu 15 til 25 þúsund krónur grammið. Verðið hefur því ekki haldist í hendur við þróun verðlags. Grammið af kókaíni hefur þannig lækkað hlutfallslega sem bendir til þess að framboðið hafi aukist. Það dró ekki einu sinni úr framboði í Covid, að sögn Valgerðar, en þá dróst neysla kókaíns hins vegar töluvert saman vegna umhverfisþátta. „Almenn neysla og eftirspurn eftir meðferð og allt svona dróst mjög mikið saman, en það var út af þessum umhverfisáhrifum. Það voru engin tækifæri til þess að fá sér eða tilefni, engin brúðkaup eða skemmtanir og djamm. Það hefur rosalega mikil áhrif á neysluna.“ Nú sé um að ræða gríðarlega mikið magn kókaíns sem tekið var úr umferð, en það verði að koma í ljós hvort það hafi einhver áhrif. Það fari til að mynda eftir því hvort það er einokun á markaðnum þegar kemur að innflutningi og sölu. Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Dæmdur morðingi sagður í haldi Ekki búsettir hér á landi Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Parísarhjólið risið á ný Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Vann í Wimbledon-lottóinu og bragðaði á frægustu jarðarberjum heims Setja sig í samband við Jürgen Klopp Svo spennt fyrir Bjarna að hún byrjaði með honum Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirufaraldrinum lokið Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Hætt við þéttingu í Grafarvogi Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Andlát: Björn Ólafs Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Prjónarar landsins sýna samstöðu í verki Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Parísarhjólið risið á ný Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Vann í Wimbledon-lottóinu og bragðaði á frægustu jarðarberjum heims Setja sig í samband við Jürgen Klopp Svo spennt fyrir Bjarna að hún byrjaði með honum Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Hantaveirufaraldrinum lokið Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Stytting rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Andlát: Björn Ólafs Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Prjónarar landsins sýna samstöðu í verki Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar