- What: Five-Eyes intelligence agencies warn of AI-driven threats
- Impact: Potential changes in cybersecurity strategies in coming months
Forstjórar netöryggisstofnana Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálands (e. Five-Eyes) vara nú við því að ný kynslóð gervigreindarlíkana muni umbreyta bæði sóknar- og varnargetu í netöryggismálum. Í síðustu viku undirrituðu forstjórar þessara stofnana sameiginlega opinbera yfirlýsingu um þá áhættu sem gervigreind skapar á þessu sviði. Arnar Gunnarsson, öryggisstjóri OK, segir að það sé sjaldgæft að allir fimm forstjórarnir setji nöfn sín undir sömu opinberu aðvörunina. Það gerist almennt ekki nema þegar stofnanirnar telja að ógnin sé að breyta eðli vandans, en ekki aðeins umfangi hans. Í yfirlýsingunni er jafnframt bent á að breytingarnar geti átt sér stað á næstu mánuðum, fremur en árum. Sjá einnig Gervigreindin þegar farin að framleiða spilliforrit „Hún undirstrikar líka punkt sem ég hef lengi haldið fram, að netöryggi er ekki lengur tæknilegt verkefni sem hægt er að geyma niðri í kjallara, heldur grundvallaráhætta í rekstri fyrirtækja og í beinni ábyrgð stjórnenda og stjórna þeirra,“ segir Arnar. Hann telur að áherslur stofnananna ættu ekki að koma neinum á óvart og að grípa þurfi til ýmissa aðgerða. Til að mynda þurfi að taka á úreltum kerfum sem gætu reynst auðveld skotmörk. Að mati Arnars er Ísland hluti af sama stafræna vistkerfi og ríkin fimm vara við og bætir hann við að smæð landsins geri það ekki ósýnilegt. „Spurningin sem hver einasta stjórn fyrirtækja og stofnana ætti að spyrja sig núna er einföld: Hverju breyttum við hjá okkur á síðustu mánuðum til að mæta þessari nýju stöðu? Ef svarið er „ekki mikið“ þá er tíminn til að breyta því núna, ekki á næsta ári, eða á næsta ársfjórðungi.“