Innlent | mbl | 3.7.2026 | 12:30 | Uppfært 12:49 Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Líklegt þykir að kókaín sé einkum vinsælt meðal eldra fólks. Samsett mynd/Colourbox/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Dæmdur morðingi sagður í haldi Ekki búsettir hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Kaupendur og seljendur fíkniefna á Íslandi hafa litlar áhyggjur af lögreglunni og efnin eru auglýst á netinu líkt og hverjar aðrar vörur á markaði, með magnafslætti og tilboðum. Þetta sýna rannsóknir sem Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hefur staðið að ásamt nemendum sínum undanfarin sjö ár. „Það hefur komið mér alltaf jafn mikið á óvart hvað þetta er aðgengilegt fyrir þá sem áhuga hafa,“ segir Helgi í samtali við mbl.is. Maður sé fljótur að komast í samband við hópa og netsíður þar sem efnin eru í boði. Lögreglan lagði fyrr í vikunni hald á 177 kíló af fíkniefnum í tveimur af stærri fíkniefnamálum Íslandssögunnar. Níu manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málanna tveggja. Frétt af mbl.is Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Eins og hverjar aðrar vörur Rannsóknir Helga sýna að kókaín, amfetamín, kannabis og önnur eiturlyf eru oft auglýst á netinu með faglegum og „lokkandi“ hætti. „Þú kaupir kannski eitt gramm en ef þú kaupir tíu grömm þá færðu einhvern magnafslátt, alls konar svona tilboð í gangi. Þetta er bara eins og hverjar aðrar vörur á markaði,“ segir Helgi. Viðskiptin taki yfirleitt stuttan tíma og seljendur séu til í að hitta fólk þar sem það er statt, hvort sem það er á kaffihúsi eða annars staðar. Frétt af mbl.is Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin Lögreglan ekki áhyggjuefni Þegar kaupendur og seljendur hafa verið spurðir hvort þeir hafi áhyggjur af því að fylgst sé með þeim eða að þeir verði teknir, hefur svarið verið afdráttarlaust. „Þá hafa þær ekki verið miklar, allavega samkvæmt þessum viðmælendum sem hafa verið nokkuð margir,“ segir Helgi. Erfiðara hafi þó reynst að fá seljendur til þátttöku í rannsóknunum en kaupendur. Þetta bendi til þess að fíkniefnamarkaðurinn sé eins konar sérsamfélag þar sem menn upplifi ekki að þeir þurfi að óttast laganna verði. Lögreglan viti þó vel af netsölunni og hafi gert rassíur, en markaðurinn virðist alltaf færast fljótt í fyrra horf. Frétt af mbl.is 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Meiri neysla hjá eldra fólki Mælingar Helga á kannabisneyslu, sem hann hefur unnið frá aldamótum, sýna að neyslan er að langmestu leyti bundin við aldurshópinn 18 til 30 ára og er lítil hjá fólki yfir fertugt. Hann grunar hins vegar að öðru máli gegni um kókaínið. „Mann grunar að þetta sé í eldri aldurshópum líka, út af því að þetta kostar. Þetta eru efni sem eru dýr og vafalítið eru þar einstaklingar og hópar sem eru eldri, sem hafa fjármagn til og nota þetta sér að einhverju leyti til afþreyingar,“ segir hann. Notendur geti þess vegna verið 40 til 50 ára, enda þurfi fólk að hafa fé milli handanna til að standa undir reglulegri neyslu á svo dýru efni. Efnin séu dýr hér á landi í samanburði við Norðurlöndin, Evrópu og Bandaríkin, sem geri markaðinn sérlega arðsaman í augum þeirra sem flytja efnin inn og selja. Frétt af mbl.is Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Dæmdur morðingi sagður í haldi Ekki búsettir hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Framkvæmdum á brúnni miðar vel Þorskastríðin dæmisaga stríðsfræðinnar Sjálfbær mönnun í heilbrigðisþjónustu Myndskeið: Spánverjar léku á als oddi Sterkir Draumabitar loksins komnir Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Samruninn hefði skapað hættu á þögulli samhæfingu Hantaveirufaraldrinum lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Framkvæmdum á brúnni miðar vel Þorskastríðin dæmisaga stríðsfræðinnar Sjálfbær mönnun í heilbrigðisþjónustu Myndskeið: Spánverjar léku á als oddi Sterkir Draumabitar loksins komnir Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Mest lesið Í gær Í vikunni Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar