Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, enn ekki hafa komist í grennd við hvalveiðiskipin tvö. Samtökin héldu því fram í færslu á samfélagsmiðlum í gær að Bandero væri nú á leiðinni á hvalamið. „Við höldum áfram að vakta skipið en það hefur ekki verið í grennd við eða ógnað hvalveiðiskipunum,“ segir Ásgeir. Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær eftir að hafa legið við bryggju í nokkra daga vegna slæms veðurs. Bandero er vestan við landið fyrir utan landhelgina. Skipverjar um borð í Bandero vilja stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur.RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson Foundation