- What: Sensitive personal data exposed in a video by Cellebrite.
- Impact: Individuals whose names were visible in the video may be affected.
Innlent | Morgunblaðið | 3.7.2026 | 15:44 Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í héraðsdómi. mbl.is/Styrmir Kári Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Héraðssaksóknari hefur ekki sett sig í samband við þá einstaklinga sem urðu fyrir því að nöfn þeirra birtust fyrir slysni í kynningarmyndbandi sem ísraelska tæknifyrirtækið Cellebrite vann þar sem fjallað var um störf embættisins. Nöfnin sem birtust í kynningarmyndbandinu tengjast virkri sakamálarannsókn hjá embættinu en Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku að embættið hefði farið fram á að myndbandinu yrði eytt um leið og upp komst að nöfn einstaklinganna væru sýnileg í myndbandinu. Myndbandinu var fyrst um sinn eytt en hefur nú verið birt á ný en nöfnin eru þar ekki lengur sýnileg. Hefur verklagi hjá embættinu nú verið breytt og verða myndatökur og viðtöl ekki lengur leyfð inni á starfsstöð héraðssaksóknara. Kom algjörlega af fjöllum Alls birtust nöfn fimm einstaklinga í myndbandinu en Morgunblaðið setti sig í samband við konu á þrítugsaldri, en nafn hennar birtist í kynningarmyndbandinu í tengslum við rannsókn embættisins. Er blaðamaður spurði konuna út í málið kom hún algjörlega af fjöllum, enda hafði henni ekki áður verið gert viðvart um málið. Vissi konan ekki til þess að mál tengt henni væri til rannsóknar hjá saksóknaraembættinu og hafði hún því ekki leitað sér aðstoðar lögmanns vegna þess. Nú hyggst hún hins vegar leita sér aðstoðar lögfræðings vegna málsins enda er það öryggisbrestur að nöfnin hafi birst opinberlega og má jafnvel leiða líkum að því að ákvæði laga hafi verið brotin með því að birta nöfnin opinberlega, þótt birtingin hafi ekki verið af ásetningi. Augljós öryggisbrestur Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður hjá lögmannsstofunni Lex og sérfræðingur í upplýsingatæknirétti, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi að um augljósan öryggisbrest væri að ræða og að nauðsynlegt væri að Persónuvernd og eftir atvikum einstaklingunum sjálfum yrði gert viðvart. Persónuvernd hefur nú hafið rannsókn á málinu í kjölfar þess að stofnuninni barst tilkynning um öryggisbrestinn. Tilkynningin barst frá sjálfu embætti héraðssaksóknara. Að sögn Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar eru viðurlög við öryggisbresti sem þessum allt að tveggja ára fangelsi og sektir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Afhroð á HM og átta leikmenn féllu á lyfjaprófi Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Brúðkaup ársins í burðarliðnum? Matseðillinn sagður kominn í ljós Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kostnaður við loftslagsmál rúmir 86 milljarðar Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjargað eftir átta daga leit Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Afhroð á HM og átta leikmenn féllu á lyfjaprófi Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Brúðkaup ársins í burðarliðnum? Matseðillinn sagður kominn í ljós Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kostnaður við loftslagsmál rúmir 86 milljarðar Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar