Innlent | mbl | 3.7.2026 | 19:32 Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Hvalur 8 og Hvalur 9 eru á veiðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Ellefta langreyðurin veidd Segja veiðar Hvals í samræmi við lög Telur vinnubrögð MAST ógna öryggi sjómanna Hvalur 8 og 9 úti á veiðum Bandero áfram vestan við landið » Fleiri tengdar fréttir Matvælastofnun (MAST) hefur breytt verklagi sínu eftir að stofnuninni bárust ábendingar um að gögn úr eftirlitsskýrslum með veiðum Hvals hf. væri mögulega nýttar í annarlegum tilgangi. Stofnunin safnar ekki lengur upplýsingum um nákvæma staðsetningu á því hvar Hvalur veiðir langreyðar. Þetta segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST í samtali við mbl.is. Kristján Loftsson, eigandi og forstjóri Hvals, sendi tölvupóst á Hrönn og fjölmiðla síðdegis í dag þar sem sagði að fyrirtækið hefði rökstuddan grun um að eftirlitsskýrslur með velferð dýra við hvalveiðar hefðu verið afhentar skipinu Bandero. Í skýrslunum er að finna nákvæma staðsetningu á veiddum langreyðum og út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig til veiða. Bandero ekki óskað eftir skýrslunum Þessu verklagi hefur nú verið breytt og er nákvæm staðsetning á veiddum langreyðum ekki lengur skráð í skýrslur MAST. Hrönn segir að stofnuninni sé skylt að afhenda eftirlitsskýrslurnar á grundvelli upplýsingalaga, svo lengi sem það brjóti ekki á persónuverndarlögum. Aðspurð segir Hrönn að Bandero hafi ekki óskað eftir umræddum eftirlitsskýrslum. Hafi skýrslurnar komist í hendur skipverja Bandero hafi þær borist þeim á annan hátt. „Við erum allavega búin að koma í veg fyrir að þetta komi fyrst frá okkur. Svo er náttúrulega bara gríðarlega alvarlegt að þeir sem fá þessi gögn afhendi þau áfram. Ábyrgð þeirra er náttúrulega gríðarlega mikil,“ segir Hrönn. Munuð þið setja ykkur í samband við þá sem hafa fengið þessi gögn afhent og árétta að nota þau ekki í þessum tilgangi? „Við þurfum bara að skoða hvernig við meðhöndlum frekari beiðnir og rýna aðeins betur í verklag og hvernig við bregðumst við.“ Frétt af mbl.is Telur vinnubrögð MAST ógna öryggi sjómanna Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar. Samsett mynd Ný staða Áhöfn Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, hefur heitið því að stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur með öllum tiltækum ráðum. Paul Watson hefur kallað aðgerðina við Íslandsstrendur Aðgerð 86 og vísar í aðgerðir Watsons árið 1986 þegar skipum Hvals var sökkt við Reykjavíkurhöfn. Í tölvupósti Kristjáns til Hrannar sagði að upplýsingar um nákvæma staðsetningu veiddra langreyða, og þá staðsetningu skips Hvals, ógnuðu öryggi sjómanna Hvals. „Það má líka segja að þessi staða sem við erum í núna, þar sem það er aðili í íslenskri lögsögu sem er að vega og meta hvort hann geti stöðvað löglega starfsemi á hættulegan máta, sé ný,“ segir Hrönn. Tengdar fréttir Hvalveiðar Ellefta langreyðurin veidd Segja veiðar Hvals í samræmi við lög Telur vinnubrögð MAST ógna öryggi sjómanna Hvalur 8 og 9 úti á veiðum Bandero áfram vestan við landið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Verður áfram hjá Sunderland Ellefta langreyðurin veidd Rob Kardashian lét sjá sig á samfélagsmiðlum Ástralía - Egyptaland, staðan er 1:1 Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umferðin byrjuð: „Reynum að fylgja fólki út úr bænum“ Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Verður áfram hjá Sunderland Ellefta langreyðurin veidd Rob Kardashian lét sjá sig á samfélagsmiðlum Ástralía - Egyptaland, staðan er 1:1 Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirufaraldrinum lokið Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Bjargað eftir átta daga leit Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar