Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ræddu skemmtidaginn umdeilda: „Hefði verið vont ef ég hefði drullað á mig“

Read Full Article →

Jón Erik Sigurðsson náði besta árangri Íslendings í alpagreinum í 20 ár á Vetrarólympíuleikunum. Einhverjir gagnrýndu undirbúning hans fyrir svigið en Jón tók skemmtidag með félögum sínum (e. day of fun). Jón útskýrði sína hlið á málinu og segir þetta í raun eðlilegan undirbúning. Gunnar Birgisson var einn þeirra sem höfðu rætt þennan undirbúning. Jón Erik heimsótti þau Eddu Sif Pálsdóttur og Gunnar í Ólympíukvöldi gærdagsins. Þar fór hann einnig yfir seinni ferð sína sem tryggði 25. sætið í svigi, opnunarhátíðina og upplifun sína af leikunum. Umræðan um skemmtidaginn hefst um miðbik klippunnar. Jón Erik Sigurðsson vakti mikla athygli á Vetrarólympíuleikunum, hvort sem var fyrir takta innan eða utan brautar. Hann ræddi umdeildan skemmtidag sinn í Ólympíukvöldi gærdagsins. Degi áður en hann keppti í svigi var hann með félögum sínum á svokölluðum skemmtidegi, (e. day of fun). Gunnar Birgisson var einn þeirra sem höfðu fjallað um daginn. „Einhverjum fannst þetta skrýtið,“ sagði Jón Erik og potaði í Gunnar. „Þegar ég sé þetta núna þá fatta ég hvað fólk er að meira. Það sem skemmir þetta eiginlega er ljósið í augunum á mér. Þá lítur maður út fyrir að vera þreyttur.“ Jón Erik segir þetta í raun eðlilegan undirbúning fyrir tæknigrein eins og svig. „Fyrir mig þá hentar það fyrir tæknigreinar að vera ekki í fókus. Ef ég er í fókus allan tímann þá steikist ég. Allavega fyrir mig,“ sagði Jón. Jón Erik býr í Austurríki og er erlendis frá ágúst til maí. Hann segir að hann myndi ekki ná þeim árangri sem hann nær ef hann byggi á Íslandi. „Þá væri þetta bara endalaust day of fun.“ Undirbúningur íþróttamanna hefur breyst Gunnar segir að undirbúningur nútíma íþróttamannsins sé einfaldlega breyttur í dag. „Það var aldrei í minni gagnrýni eitthvað sem tengist áfengi eða einhverju slíku. Ég held að breytan sé sú og það er klárlega eitthvað sem ég get lært af. Undirbúningur íþróttamanna er orðinn öðruvísi en hann var. Ég er líka að sjá myndbönd af Klæbo-degi fyrir keppni í tölvunni uppi á hótelherbergi.“ Rétt er að taka fram að Jón Erik lifir vímuefnalausu lífi og hefur alltaf gert. „Hefði maður séð Björn Dæhli gera slíkt fyrir Ólympíuleikana í Lillehammer 1994? Hugsa ekki,“ sagði Gunnar. „En aftur, algjörlega „you do you.“ Maður undirbýr sig bara eins og það sem er best fyrir sig, fyrir keppni. En ég held að við séum væntanlega sammála um að þetta hefði ekki verið leiðin hjá Bode Miller,“ bætti Gunnar við. „Ef þú hefðir farið út báðum megin?“ sagði Gunnar. „Þá hefði þetta verið vont, ef ég hefði drullað á mig. En þetta virkaði ágætlega,“ svaraði Jón Erik. Stefnir á topp 10 á næstu leikum Jón Erik er 22 ára og stefnir enn hærra á næstu leikum. „Það er klárlega stefnan, næstu Ólympíuleikar. Svo er það HM á næsta ári sem ég stefni líka að því að vera að keppa á. Svo er það að reyna að koma sér inn á heimsbikarinn, að skila einhverjum árangri í Evrópubikar. Markmiðið fyrir næstu Ólympíuleika er að fara að keppast um að vera í toppsætunum.“ „Mig langar ekki að vera aftur að elta topp 30 þá. Markmiðið eftir fjögur ár væri að komast í topp 10.“ Eini dansinn sem pabbi kunni Jón vakti mikla athygli fyrir dans á opnunarhátíðinni. Hann sagðist ekki hafa gert sér almennilega grein fyrir hversu stórt mótið væri fyrr en að hann fékk ógrynni skilaboða eftir opnunarhátíðina. „Við vorum í röðinni að horfa á opnunarhátíðina á RÚV. Við ætluðum ekki að vera eins og allir hinir einhvern veginn, að labba þarna inn með fánann. Við hugsuðum að við þyrftum að dansa og þetta er eiginlega eini dansinn sem hann kunni.“ Hann ræddi einnig muninn á upplifuninni í ár að það var ekki eitt eiginlegt Ólympíuþorp heldur voru keppendur á víð og dreif á Norður-Ítalíu. Fyrst og fremst stemningsmaður Jón fór svo í gegnum seinni ferð sína í heildina en hann taldi miðjukaflann sinn besta kaflann. „Þarna aftur beygir þetta svona 10x meira en ég hélt að þetta myndi gera,“ sagði Jón. Það heyrðist vel í áhorfendum þegar hann kom í mark í sviginu. Jón fagnaði vel og innilega. „Þetta voru einhvern veginn tilfinningarnar sem komu þarna. Þetta var ekkert planað þetta fagn þarna. Þetta var einhvern veginn bara stemningin þarna. Ég er fyrst og fremst stemningsmaður,“ sagði Jón svo um fagnið sitt. „Markmiðið var bara að hafa gaman og að lifa þessa upplifun, sem mig hafði lengi dreymt um síðan ég var krakki.“ Afar athyglisverð staða fyrir leika Um tíma var afar tvísýnt hvort Jón Erik kæmist á leikana. Baráttan var afar hörð við Gauta Guðmundsson en var þó í mesta vinskap þar sem Gauti er í sambandi með systur Jóns. „Við getum orðað það þannig að ég svaf ekki í svona tvo mánuði fyrir þetta val.“ Jón var tíu sekúndubrotum á undan Gauta á móti á síðasta ári sem réði úrslitum. Systir hans sendi stöðuna á þá tvo þar sem tímatakan á svæðinu var ekki að virka sem skildi. „Systir mín er kærasta Gauta þannig að þetta er allt einhvern veginn inni í fjölskyldunni. Hún skrifaði þetta allt niður.“ Mikil reikistefna var um hvor þeirra væri á undan á tímabili. „Ég var eiginlega búinn að undirbúa mig um að þetta væri ekki nóg. Hann var með forskotið fyrir þetta en við vorum búnir að segja það fyrir leika að þetta yrði annaðhvort ég eða hann. Það var allavega annar hvor hennar maður sem fór inn,“ sagði Jón.

Share this article