- What: Discussion on the impact of regulations on the tourism industry
- Impact: Tourism businesses in Iceland
Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, segir að oft gleymist í umræðunni að skemmtiferðaiðnaðurinn spannar mun breiðara svið en einungis ferðaþjónustu. „Skipafélögin, olíufélögin, heildsölur, skipaþjónustuaðilar, köfunarþjónusta og svo mætti lengi áfram telja eru allt aðilar sem tengjast þessum geira með beinum hætti.“ Brýnt sé að stjórnvöld hafi þetta í huga þegar teknar séu ákvarðanir sem hafi bein áhrif á geirann. „Stjórnvöld verða að gæta þess að ramminn í kringum geirann geri hann sem best í stakk búinn til að skapa verðmæti. Gæta þarf þess að löggjöf og skattheimta í kringum geirann sé ekki of íþyngjandi, auk þess þarf að koma í veg fyrir að verið sé að flækja hlutina um of.“ Gott dæmi um hve slæmar afleiðingar ákvarðanir stjórnvalda geti haft á atvinnugreinina sé afnám tollfrelsis og hækkun á innviðagjaldi á skemmtiferðaskip sem koma til Íslands, sem síðasta ríkisstjórn réðist í. Umræddar aðgerðir höfðu slæm áhrif á bókanastöðu skemmtiferðaskipa til Íslands, sem bitnaði að sögn Sigurðar verst á höfnum á landsbyggðinni. Hann fagnar því að núverandi ríkisstjórn hafi beitt sér fyrir því að vinda ofan af þessum breytingum. „Þetta leiddi því miður til þess að viðskiptin færðust annað. Þrátt fyrir að búið sé að vinda ofan af þessu er enn svigrúm til að auka samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip enn frekar.“ Sigurður segir að af samtölum sínum að dæma við aðila sem tengjast skemmtiferðaiðnaðinum í Danmörku og víðar um Evrópu sé þessi reynsla Íslendinga öðrum víti til varnaðar. Til marks um áhrif fyrrnefndra aðgerða fyrri ríkisstjórnar á bókunarstöðu skemmtiferðaskipa sýna tölur úr samræmda bókunarkerfinu DOKK að 1.209 skemmtiferðaskip komu til Íslands árið 2024 og 1.163 í fyrra. Í ár verða komurnar 1.049, samkvæmt tölum frá því í lok maí. Samkvæmt sömu tölum mun komum fækka niður í 854 á næsta ári og 740 árið 2028. Að sögn Sigurðar eru bókanir fyrir árið 2028 þó að taka við sér. „Fyrirtækin í þessum bransa eru alltaf að bóka áfangastaði nokkur ár fram í tímann, þannig að það er ljóst að það verður samdráttur í komum skemmtiferðaskipa í ár og á því næsta. Skaðinn af þessum breytingum er skeður og er óafturkræfur þegar horft er til áranna 2026 og 2027.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .