Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fullkominn ferðabíll

Read Full Article →

Toyota kynnti á dögunum nýjan rafbíl, Toyota bZ4X Touring. Um er að ræða stærri og öflugri bíl en hinn hefðbundni bZ4X. Þetta er aflmesti 100% rafbíll japanska bílaframleiðandans. Bíllinn var kynntur bílablaðamönnum í Slóveníu nýlega, nánar tiltekið við hið fagra Bled-vatn. Hönnun bílsins er lagleg og kraftmikil en á sama tíma straumlínulöguð. Bíllinn er með einkennandi hammerhead-framenda eins og Toyota kallar það og gefur honum harðgert yfirbragð sem veit á gott miðað það hlutverk sem bílnum er ætlað þ.e. að vera kjörinn ferðabíll fyrir fjölskylduna. Þakbogarnir og 20 tommu felgurnar gefa bílnum einnig kraftmikið yfirbragð. Innanrýmið er nútímalegt og stílhreint. Stílhreinn og nútímalegur að innan Innanrýmið er alveg eins og í hefðbundnum bz4X, stílhreint og nútímalegt. 14 tommu snertiskjár er með þægilegt viðmót. Hraðamælirinn er staðsettur svolítið á bak við stýrið en það venst. Margar hagnýtar geymslulausnir eru í innanrýminu sem kemur sér vel. Stemmningslýsingin býður upp á 64 liti og þegar skipt er um akstursstillingu kemur nýr litur sem er skemmtilegt. Bíllinn býður upp á nútímalega margmiðlunarupplifun í stafrænu ökumannsrýminu og MyToyota-appið stillir m.a. hitastig í farþegarýminu og veitir allar upplýsingar t.d. um drægni og stöðu hleðslunnar. Mikið pláss fyrir fólk og farangur Touring útgáfan býður upp á meira rými og aukin afköst samanborið við hinn hefðbundna bz4X. Touring er 4.830 mm langur og er 310 mm lengri og 20 mm hærri en hefðbundinn bz4X. Bíllinn er raunar mjög góður kostur fyrir fjölskyldur og þá sem vilja nýta rafbíla til ferðalaga um landið. Það er nóg pláss fyrir fólk og farangur og bíllinn rúmgóður í alla staði. Farangursrýmið er mjög rúmgott. Það er 669 lítrar og má stækka það í 1.718 lítra með aftursætin niðri. Þarna er hægt að koma léttilega fyrir golfsettum, veiðibúnaði, tjaldi og öðrum útilegubúnaði, allt hvað hugurinn girnist. Farangursrýmið er rúmgott og gott að umgangast. Ég reynsluók fjórhjóladrifnum bZ4X Touring um sveitir og fagra bæi Slóveníu. Mikil fegurð er víða í þessu friðsæla Alpalandi og ekki síst við Bled-vatnið þar sem má finna fallega og rómantíska miðaldakirkju á eyju út í vatninu. Efst á klettum fyrir ofan vatnið stendur tignarlegur kastali sem byggður var á 11. öld. Þá er sumarhöll Tito heitins, fyrrum forseta Júgóslavíu, við vatnið ásamt fleiri fögrum húsum. 4,5 sekúndur í hundrað Aflið í Touring er mikið og meira en ég bjóst við. Rafmótorar skila bílnum 380 hestöflum og hann fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst. á 4,5 sekúndum. Það kom mér skemmtilega á óvart þessi mikla snerpa í þetta stórum og löngum bíl. Það var gaman að aka honum á hraðbrautinni milli Bled og Ljubljana og gefa í. Ég fór á örskotsstundu í 120 km hraða á hraðbrautinni. Þetta er samt enginn kappakstursbíll og hámarkshraðinn er einungis 160 km/klst en hann er vissulega snöggur upp. Bíllinn stóð sig heilt yfir mjög vel í reynsluakstrinum og kom líka skemmtilega á óvart hversu lipur hann var í beygjum þótt langur sé. Ekið var m.a. um hið fagra Bled-vatn í Slóveníu. Fínt fjórhjóladrif og fjöðrunarkerfi Hann er mjög lipur í akstri og stýringin er nákvæm og fín. Touring er með X Mode fjórhjóladrifskerfið frá Subaru sem er afar gott. Fjöðrunarkerfið er líka stórgott og það fannst vel í akstri í möl og drullu sem boðið var upp á í sveitum Slóveníu. Það tryggði öruggt grip í erfiðum aðstæðum þar sem auk þess rigndi þegar á reynsluakstrinum stóð þannig að aðstæður voru erfiðar á sumum köflum. Þá var bíllinn einnig prófaður á malarvegum í fjallshlíðum og þar stóð hann sig einnig vel. X-Mode kerfið býður upp á stillingar t.d. snjó/drullu eða djúpan snjó/drullu sem er stórsniðugt og aðstoðar heldur betur við aksturinn jafnvel við erfiðustu aðstæður. Þetta er bíll sem stendur sig vel hvort sem um er að ræða borgarferðir eða helgarævintýri úti á landsbyggðinni þar sem eru malarvegir eða nettar torfærur. Bíllinn er aflmikill og aðeins 4,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Rafhlaða bZ4X Touring er staðsett undir gólfi innanrýmisins. Þessi lausn hámarkar rými um borð og lækkar þyngdarpunkt bílsins, sem skilar í leiðinni betri aksturseiginleikum. Allt að 479 km drægni Bíllinn býður upp á allt að 479 km drægni. Hleðslutími úr 10-80% er 28 mínútur samkvæmt upplýsingum frá Toyota. Bíllinn er einnig fáanlegur með framhjóladrifi. Sú útfærsla skilar 224 hestöflum og er 7,2 sekúndur í 100 km/klst. Drægnin á þeim bíl er allt að 591 km. Fjallað er um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article