Tvö börn fóru á slysadeild eftir að tívolítæki féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta. Hann segir börnin hafa verið með einhverja áverka eftir slysið en ekki alvarlega. Foreldrar barnanna fóru með þau á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Atvikið gerðist um klukkan 15:30 í gær og lögregla fór á staðinn. Magnús segir að Vinnueftirlitið verði upplýst um málið sem sé til rannsóknar. Ingi Þór Jónsson heldur utan um skipulag Bryggjuhátíðar. Hann segir það hafa verið áfall þegar tækið féll í gær. Tækið, sem er hringekja með bollum sem börn sitja í, hafi verið fullsetið. Það er rekið af fyrirtækinu Hringekjunni ehf. Ingi Þór segir tækið hafa verið í gangi þegar íhlutur á festingu, svokallað splitt, þess brotnaði í gær með þeim afleiðingum að það féll niður. „Þetta eru fjórir fætur, svona eins og köngulóafætur, sem fara út og splitti á einum þeirra brotnar. Þá einhvern veginn dettur það niður öðrum meginn og þannig varð slinkur og tækið dettur niður,“ segir Ingi Þór. „Eitt barn slóst utan í járnstöng sem heldur bollanum.“ Ingi Þór vissi aðeins til þess að eitt barn hefði meiðst í slysinu. Hringekjan verður ekki á Bryggjuhátíðinni í dag. „Tækið var bara stoppað strax og ekkert meira notað. Það voru allir frekar sjokkeraðir yfir þessu, fyrst og fremst krakkarnir og foreldrarnir.“ Ekki náðist í eiganda Hringekjunnar ehf. við gerð þessarar fréttar.