Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grunaður árásarmaður á Íslandsbryggju gaf sig fram

Read Full Article →

Karlmaður um þrítugt er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið sænskum manni að bana á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn á þriðjudag. Hann er grunaður um að hafa veitt manninum þungt hnefahögg í háls og höfuð með þeim afleiðingum að hann fékk heilablæðingu og brot á hryggjarlið. Samkvæmt DR stendur hann frammi fyrir ákæru fyrir líkamsárás en ekki manndráp. Lögregla staðfesti í gær að sænski maðurinn væri látinn. Hinn grunaði gaf sig sjálfur fram á lögreglustöð í gær eftir að lögregla lýsti eftir honum, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá, en neitar sök. Hann hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Árásin varð á viðburði þar sem sýnt var frá leik á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu á risaskjá. Danskir fjölmiðlar herma að tildrög árásarinnar hafi verið stimpingar milli tveggja hópa. Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur segist sár og reiður yfir atvikinu. Hann vonist eftir þungri en réttlátri refsingu.

Share this article