Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sprotar myndast og hugmyndir verða til

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.7.2026 | 20:35 Sprotar myndast og hugmyndir verða til Atvinnulífið í kaupstaðnum er fjölbreytt og hefur breyst mikið á síðustu árum. Þar hefur nýsköpun hvers konar komið mjög sterk inn. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Grundvallarbreyting þarf að eiga sér stað í byggðaþróun á Íslandi. Þetta segir Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags á Akranesi, sem nýverið lauk rannsókn á hlutverki nýsköpunarsetra og óstaðbundinna starfa. Rannsóknin var valin besta lokaverkefni útskriftarnema í MBA-námi við Háskóla Íslands. Í húsnæði Breiðar, sem áður hýsti fiskvinnslu Haraldar Böðvarssonar hf. og síðar Granda, starfa nú um 100 manns í fjölbreyttum störfum. Vel hefur tekist til við að koma í not þessum miklu húsum við höfnina á Skaganum og eru nú um 90% af nýtanlegu rými í húsinu í útleigu. Meðal þeirra sem þarna hafa aðsetur fyrir starfsemi sína eru forritarar, iðjuþjálfi, rafvirkjar, smiður, verkfræðingar og byggingarfræðingur. Einnig lögfræðingar, máltæknifræðingur, matarfrumkvöðull, viðskiptafræðingar, haffræðingur, endurskoðandi, arkitektar, líffræðingar og lögmenn svo eitthvað sé nefnt. Einnig má nefna viðburði sem þarna hefur verið efnt til, svo sem markað með sjávarfang og afurðir beint frá býlum bænda. Lifandi miðpunktur fyrir líflega starfsemi „Nýsköpunarsetur og samvinnurými hafa sprottið upp á undanförnum árum, bæði í stærri bæjum og smærri samfélögum. Reynslan er jákvæð og sýnir líka skýrt að árangur ræðst ekki af húsnæðinu sjálfu, heldur af því hvernig tekst að byggja upp starfsemina og starfa með nærsamfélaginu,“ segir Valdís, sem hefur starfað hjá Breið undanfarin ár og fylgst náið með almennri þróun á Akranesi. Valdís Fjölnisdóttir. „Ég hef séð hvernig þetta hefur haft raunveruleg áhrif á samfélagið. Það sem áður var hefðbundið atvinnuhús er nú lifandi miðpunktur fyrir fjölbreytta starfsemi, sem hefur aukið aðdráttarafl svæðisins og fjölbreytni í atvinnulífinu. Við sjáum skýra breytingu. Þetta snýst ekki lengur um að flytja störf til fólks, heldur um að skapa aðstæður þar sem fólk getur valið sér búsetu án þess að fórna atvinnumöguleikum.“ Í rannsókn Valdísar kemur fram að nýsköpunarsetur gegni lykilhlutverki í byggðaþróun; það er, skapi umhverfi sem geri störf möguleg óháð staðsetningu. „Í því felst stærsta tækifærið, eða að tengja stafrænan vinnumarkað við samfélög um allt land. Fólk upplifir aukin lífsgæði og sveitarfélög styrkjast sem búsetukostir. Þá sýna niðurstöður að tengslamyndun innan setranna leiðir oft til nýrra verkefna og samstarfs sem annars hefði ekki orðið,“ segir Valdís og heldur áfram: Vöxtur í sköpun og sérhæfðri þekkingu „Við sjáum aukinn fjölda starfa óháð staðsetningu auk vaxtar í skapandi greinum og sérhæfðri þekkingarvinnu. Þessi þróun verður sérstaklega sýnileg í nýsköpunarsetrum. Þar myndast oft sprotar sem hefðu annars ekki orðið til. Fólk með ólíkan bakgrunn hittist, hugmyndir kvikna og úr verða ný verkefni og fyrirtæki. Þetta umhverfi er því ekki bara vinnuaðstaða heldur vettvangur þar sem nýsköpun getur raunverulega orðið, jafnvel langt út fyrir sitt nærsamfélag.“ Að mati Valdísar er lykilatriði að horfa ekki eingöngu á aðstöðuna sjálfa heldur það sem gerist innan hennar. „Það er ekki húsnæðið sem skiptir mestu máli heldur lífið innan þess. Þar sem er skýr forysta, tengslamyndun og markviss stjórnun myndast öflugt vistkerfi.“ Rannsóknin dregur þó einnig fram áskoranir. Kostnaður og aðgengi getur takmarkað þátttöku, sérstaklega hjá smærri aðilum, og bendir Valdís á að stuðningskerfi atvinnulífsins nái ekki alltaf að fylgja eftir góðum ásetningi. Stuðningskerfi sé einfalt og aðgengilegt „Í þessu felast tækifæri til að taka nýsköpunarsetur og störf án staðsetningar inn í atvinnustefnu á hverju svæði. Ef það tekst er hægt að styrkja byggðir um land allt,“ segir Valdís. Fyrir Byggðastofnun sé þarna algjört lykilatriði að þróa stuðningskerfi sem sé einfalt og aðgengilegt. „Við þurfum ekki endilega fleiri úrræði heldur betri framkvæmd. Að einfalda kerfin og tryggja aðgengi. Í heild sinni sýnir rannsóknin að nýsköpunarsetur og óstaðbundin störf geti orðið einn af helstu drifkröftum jákvæðrar byggðaþróunar á Íslandi. Framtíðin felst ekki í því hvar störfin eru staðsett, heldur í því að fólk geti valið sér búsetu án takmarkana,“ segir Valdís um nýja nálgun í byggðaþróun á Íslandi, meðal annars starfið í Breið sem lukkast hefur vel á flesta lund. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrsti Brasilíumaðurinn í 40 ár Brasilía - Noregur, staðan er 0:0 – vítaklúður Sprotar myndast og hugmyndir verða til Aron Einar kvaddur í Katar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Baðstemning á höfninni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Swift og Kelce gengu í það heilaga Var á göngu með syni sínum Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Ósáttur með byggingu risahótels Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Fyrsti Brasilíumaðurinn í 40 ár Brasilía - Noregur, staðan er 0:0 – vítaklúður Sprotar myndast og hugmyndir verða til Aron Einar kvaddur í Katar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Var á göngu með syni sínum Markaðurinn furðufljótur að jafna sig Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Ósáttur með byggingu risahótels Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita

Share this article