Í júní, á lokadögum Alþingis fyrir sumarleyfi, var samþykkt að afnema jafnlaunavottun fyrirtækja og taka upp einfaldari skýrsluskil. Óðinn hefur ekki komið auga á margar ástæður til að hrósa núverandi ríkisstjórn fyrir vel unnin verk. En þarna kom loks eitt. Hér á eftir er pistill Óðins frá því um miðjan júní. Þorbjörg Sigríður, Diljá Mist og afnám jafnlaunavottunar Fyrir rúmum tveimur árum, í febrúar 2024, boðaði Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins frumvarp á Alþingi um að afnema lög um jafnlaunavottun. Í hlaðvarpsþætti sagði Diljá Mist þetta um vottunina: Þetta er náttúrulega hrikalegt bákn sem Viðreisn ber ábyrgð á. Svona þeirra barn úr þeirra fortíð í stjórnarsamstarfi. Ég held bara að það sé búið að sýna sig og ég er auðvitað með gögn því til stuðnings, að þetta er bara algjört rusl þetta kerfi. Jafnlaunavottunin varð að lögum árið 2017 og var það Þorsteinn Víglundsson, þáverandi félagsmálaráðherra Viðreisnar, sem lagði frumvarpið fram. *** Milljarðakostnaður fyrir íslenskt atvinnulíf Samtök atvinnulífsins gerðu alvarlegar athugasemdir við frumvarpið áður en það varð að lögum og sögðu að það myndi kosta atvinnulífið milljarða króna á hverju ári. Í umsögn SA sagði: Í greinargerð frumvarpsins er ekki lagt mat á þann kostnað sem leggst á fyrirtæki og stofnanir vegna kvaðarinnar um innleiðingu staðalsins ÍST 85. Samkvæmt upplýsingum vottunarstofa er gjald fyrir úttekt og vottun á bilinu 500-700 þús. kr. fyrir meðalfyrirtæki. Vottun 1.200 fyrirtækja og stofnana m.v. 600 þús. kr. kostnað að meðaltali kostar því í heild um 700 m.kr. En mestur kostnaður felst í vinnu sem þarf að fara fram innan fyrirtækja og stofnana til að fylgja kröfum staðalsins. Síðar í umsögninni sagði: Óhætt er því að gera ráð fyrir að innri kostnaður fyrirtækja við innleiðingu staðalsins og kostnaður vegna kaupa á þjónustu sérfræðinga í stöðlum og launakerfum hlaupi á nokkrum milljörðum króna fyrir þá 1.200 aðila sem um ræðir. *** Aðstoðarmaðurinn ver verk ráðherrans Stuttu eftir hlaðvarpsþáttinn ræddi mbl.is við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, þá óbreyttan þingmann Viðreisnar en nú dómsmálaráðherra sama flokks í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Þorbjörg Sigríður var aðstoðarmaður Þorsteins þegar lögin voru sett. Í samtali við mbl.is reyndi Þorbjörg Sigríður að skella skuldinni á aðra en Viðreisn: Þetta er nú mál sem var í stjórnarsáttmála í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, var ákveðið flaggskip í ríkisstjórn Bjarna. Í því samhengi tilheyrir þetta mál nú líka Sjálfstæðisflokknum. Hún segir það ekki vera að ástæðulausu að Ísland sé leiðandi á heimsvísu í jafnréttismálum: Jafnlaunavottunin er svona eitt af þeim verkfærum sem við höfum til að tryggja launajafnrétti. Ég myndi kannski segja að það komi mér ekki alveg á óvart hver afstaða Sjálfstæðismanna er, eða hefur verið, til jafnréttismálanna. Þorbjörg Sigríður sagði þó að það væri eðlilegt að rýna hver kostnaðurinn og árangurinn af innleiðingu jafnlaunavottunar hefði verið. *** Smjörklípa af ódýrari gerðinni Þetta var auðvitað óskaplega ódýr smjörklípa hjá Þorbjörgu Sigríði því hún vissi að allir vissu að þetta jafnlaunavottunarmál var sérstakt áhugaefni þingmanna Viðreisnar og troðið inn í stjórnarsáttmála hinnar fyrri skammlífu ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar með hinni svokölluðu Björtu framtíð, sem nú er fortíð. Má segja að Viðreisn hafi verið stofnuð um tvennt. Inngöngu í Evrópusambandið og mál eins og jafnlaunavottun. Eru bæði þessi mál af sama meiði, að auka byrðar á fólki og fyrirtækjum. *** Frumvarp Þorbjargar Sigríðar um afnám Þorbjörg Sigríður lagði fram frumvarp í vor sem dómsmálaráðherra um afnám jafnlaunavottunarinnar. Frumvarpið var samþykkt í þinginu í júní. Í stað árlegrar úttektar utanaðkomandi vottunaraðila verður tekið upp einfaldara kerfi reglubundinnar skýrslugjafar. Fyrirtækjum og stofnunum þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli ber að skila Jafnréttisstofu gögnum um starfaflokkun og launagreiningu á þriggja ára fresti, ásamt tímasettri úrbótaáætlun mælist kynbundinn launamunur. Áður náði skyldan til fyrirtækja með 25 starfsmenn eða fleiri. Ráðuneytin skila gögnum óháð fjölda starfsfólks. Þorbjörg Sigríður lagði áherslu á að markmiðin sjálf stæðu óhögguð þótt aðferðin breyttist. Ráðherra rökstuddi breytinguna með kostnaði og íþyngjandi regluverki. Í greinargerð frumvarpsins er áætlað að hagræðing af breytingunni nemi um 1,5 milljörðum króna á kjörtímabilinu. Í þingræðu 30. apríl sagði Þorbjörg Sigríður: Þetta er dýrt kerfi. Það er þungt í vöfum. Og þegar þetta eru skilaboðin árum saman frá atvinnulífinu leggjum við hlustir og við breytum þessu. *** Diljá vildi ganga lengra Diljá Mist Einarsdóttir, helsti hvatamaðurinn um afnám jafnlaunavottunar, vildi ganga lengra og gera nýja kerfið valkvætt. Þeirri breytingartillögu hafnaði Þorbjörg Sigríður og félagar hennar í ríkisstjórnarflokkunum. Í atkvæðagreiðslu gerði Diljá Mist grein fyrir atkvæði sínu: Það er gleðidagur í dag hjá okkur hæstvirtum dómsmálaráðherra, sem á hrós skilið. Það er til eftirbreytni fyrir okkur öll sem vinnum við stjórnmál að festast ekki í pólitískum kreddum. Það er ekki allt sem við beitum okkur fyrir sem mun ganga vel eða mun reynast vel og þá þarf að horfast í augu við það og gera nauðsynlegar breytingar, eins og hæstvirtur dómsmálaráðherra fer hér fyrir í dag. Í atkvæðagreiðslu dagsins styðjum við Sjálfstæðismenn breytingar hæstvirts ráðherra heils hugar þar sem hún leggur til að leggja niður jafnlaunavottun í núverandi mynd. Hæstvirtur ráðherra leggur í stað þess til nýtt og léttara kerfi um skyldubundna skýrslugjöf. Við Sjálfstæðismenn hefðum viljað ganga lengra og leggjum því til að skýrslugjöfin verði með öllu valkvæð. Nóg er af álögum og kvöðum á íslenskt atvinnulíf. Það verður að taka undir með Diljá Mist. Það er rétt að hrósa Þorbjörgu Sigríði fyrir niðurlagningu jafnlaunavottunarinnar, sem var einhver gagnslausasta skýrslugerð sem fyrirtækin í landinu þurftu að standa í. Og er þó af mörgu að taka. Það er óskaplega algengt að stjórnmálamenn geti ekki viðurkennt mistök sín. Og ekki síður mistök samherja sinna. Ótal dæmi eru um það í ríkisrekstrinum. Heill Landspítali, svo tekið sé lítið dæmi.