Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.7.2026 | 22:40 Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson. Ljósmynd/Aðsend Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson, sem ætluðu að synda frá Vestmannaeyjum að Landeyjarhöfn í dag, voru staddir um 1.500 metra frá landi þegar ákveðið var að hætta skyldi sundinu vegna veðurskilyrða. „Þetta gekk rosalega vel fyrstu kílómetrana. Við fengum mjög góðar aðstæður og vorum á þrusugóðu róli og það stefndi allt í að við myndum klára þetta á um fimm klukkutímum,“ segir Jóhann í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Skipað að stöðva sundið Íslenska veðrið á það oft til að vera ansi ófyrirsjáanlegt eins og landsmenn þekkja mætavel. Á sundi félaganna sannaðist hið forkveðna að skjótt skipast veður í lofti. „Svo bara á tveimur mínútum lagðist yfir svaka mikill öldugangur og vindur og við fórum frá því að vera á spegilsléttu og þægilegu færi í að vera í einhverjum öldugraut,“ segir hann. „En við héldum áfram að synda og neituðum að gefast upp. Svo tók skipstjórinn ákvörðun um að þetta væri orðið of hættulegt og sundið var stöðvað,“ bætir hann við en þá voru þeir félagar staddir um 1.500 metrum frá Landeyjarhöfn. Þess ber að geta að félagarnir áætluðu að sundið milli lands og eyja yrði tólf til þrettán kílómetrar. Frétt af mbl.is Synda af stað innan tíðar Hafa safnað nærri milljón Jóhann segist þó afar stoltur af frammistöðu þeirra í krefjandi aðstæðum. Íslenska veðrið megi ekki vanmeta og ber Jóhann mikla virðingu fyrir því. Sundið var synt til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk. Þegar þessi frétt er skrifuð er búið að safna 987.000 krónum. Hægt er að heita á sundkappana hér . „Við erum svo þakklátir fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið og maður á ekki til orð yfir samstöðuna sem maður er búinn að sjá og það er náttúrulega það sem skiptir mestu máli. Tilgangurinn er fyrst og fremst að láta gott af okkur leiða,“ segir hann. Spara sér miðann í Herjólf Jóhann segir miklar líkur á því að þeir félagarnir reyni aftur við sundið í ljósi þess hve nálægt endamarkinu þeir komust í dag. Væri ekki tilvalið að synda bara á Þjóðhátíð? „Já, hvernig væri það? Synda á Þjóðhátíð og spara sér miðann í Herjólf,“ segir Jóhann og hlær. „Við vorum svo pínlega stutt frá landi að ég held að það verði erfitt að sleppa því að koma aftur og klára þetta,“ bætir hann við að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Stemning á Akureyri um helgina Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Trump blandaði sér í málið og hringdi í FIFA Sendiherrar íslenskunnar úti um allan heim Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Tók miklum breytingum: Rétt að staldra við Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Var á göngu með syni sínum Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Nýjast á mbl.is » Myndir: Stemning á Akureyri um helgina Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Trump blandaði sér í málið og hringdi í FIFA Sendiherrar íslenskunnar úti um allan heim Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Var á göngu með syni sínum Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið

Share this article