Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Baráttan um Íberíuskagann og Belgar mæta bönnuðum Balogun

Read Full Article →

Í dag halda 16-liða úrslit heimsmeistaramóts karla í fótbolta áfram með tveimur leikjum sem báðir verða sýndir á rásum RÚV. Klukkan 19:00 eigast Portúgal og Spánn við í baráttunni um Íberíuskagann. Cristiano Ronaldo stórstjarna Portúgals lét hafa eftir sér í gær að þetta heimsmeistaramót yrði hans síðasta. Það er því spurning hvort leikurinn við Spán verði hans síðasti HM leikur, eða hvort Portúgal vinni og Ronaldo fái fleiri leiki á HM, en mótið í ár er hans sjötta. Leikurinn verður sýndur á RÚV 2. Á miðnætti er svo komið að leik Bandaríkjanna og Belgíu. Þar beinast sjónir flestra að Folarin Balogun í liði Bandaríkjanna sem Donald Trump Bandaríkjaforseti fékk náðaðan af FIFA í gær, þrátt fyrir að Balogun hefði fengið rautt spjald í síðasta leik og ætti að vera í banni í kvöld. Belgar hafa mótmælt þessum gjörningi harðlega, en ljóst er að mikið verður horft til Balogun í leiknum í kvöld. Dagskrá dagsins: 18:30 - Stofan - RÚV 2 20:00 - Portúgal - Spánn - 16-liða úrslit - HM karla í fótbolta - RÚV 2 21:05 - HM kvöld - RÚV 2 23:45 - Bandaríkin - Belgía- 16-liða úrslit - HM karla í fótbolta - RÚV

Share this article