Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Allt járn var orðið ryðgað“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 9:38 „Allt járn var orðið ryðgað“ Framkvæmdir hófust 13. maí og á þeim að ljúka í vikunni. Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Umfangsmiklar endurbætur standa yfir á Árneskirkju á Ströndum, sem vígð var árið 1991, og sóknarnefnd safnar nú fé til að klára verkið. Þrátt fyrir framkvæmdirnar var brúðkaup haldið í kirkjunni um helgina. Oddný Þórðardóttir, formaður sóknarnefndar kirkjunnar, segir að öll ytri klæðning kirkjunnar hafi verið ónýt. „Allt járn var orðið ryðgað. Kirkjan stendur við sjóinn þar sem sjórok og salt fara illa með byggingarefni. Ryðið hafði einnig skemmt Steni-klæðninguna og þar sem taka þurfti hana niður til að komast að gluggunum var ákveðið að endurnýja hana líka,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. Framkvæmdum lýkur senn Framkvæmdir hófust 21. maí og var ákveðið að ráðast í verkið í einum áfanga. „Þetta er mikið átak fyrir okkur því kirkjan átti í raun enga peninga fyrir þessu. Jöfnunarsjóður sókna hafði þó veitt okkur styrk sem dreifðist á fjögur ár,“ segir Oddný. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 35-40 milljónir króna. Nú þegar hafa safnast um 27 milljónir og því vantar enn um 8-13 milljónir króna upp á að verkefnið verði fullfjármagnað. Stefnt er að fjáröflunarskemmtun síðar í sumar til að safna því sem upp á vantar. „Framkvæmdunum er nú að ljúka og er stefnt að því að þeim ljúki í þessari viku. Nú er verið að klæða kirkjuna að utan með álklæðningu á bæði þaki og veggjum sem á að reynast mun endingarbetri en fyrri klæðningin,“ segir Oddný. Sigursteinn Sveinbjörnsson ánægður með ástand viðarins. Þrátt fyrir framkvæmdirnar var brúðkaup haldið í kirkjunni 4. júlí og hófust framkvæmdir á ný strax að athöfn lokinni. „Við lögðum áherslu á að klára framhliðina fyrir brúðkaupið svo kirkjan liti sem best út. Framkvæmdir stöðvuðust um tvöleytið og athöfnin hófst klukkan þrjú. Brúðguminn var mjög ánægður með útkomuna og ég held að allt hafi tekist mjög vel.“ Rekaviður frá Litlu-Ávík Þegar klæðningin á kirkjunni var tekin niður segir Oddný að eitt hafi komið sérstaklega á óvart. Burðarviðirnir reyndust vera í góðu ástandi. Við nánari skoðun kom í ljós að viðirnir voru úr heimasöguðum rekaviði sem Sigursteinn Sveinbjörnsson í Litlu-Ávík hafði sagað og gefið kirkjunni á sínum tíma. Við tækifæri fór Oddný með Sigursteini að skoða burðarviðina á ný, um 40 árum eftir að þeir voru notaðir í kirkjuna. „Það var mjög gaman að fara með honum. Hann var mjög ánægður með að sjá hvað viðurinn hans stóð sig vel. Hann hefur einnig lagt fé til uppbyggingarinnar hérna,“ segir hún. Eftir heimsóknina afhenti hún honum blómvönd frá sóknarnefndinni til að þakka honum fyrir framlagið. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bjarki Már semur við PSG Fjöldahreyfing gegn ESB-aðild stofnuð „Allt járn var orðið ryðgað“ Dómararnir ekki nógu góðir á HM Ronaldo skaut föstum skotum á blaðamann Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Tveir gistu í klefa í nótt: Grunur um líkamsárás Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Tók miklum breytingum: Rétt að staldra við Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Bjarki Már semur við PSG Fjöldahreyfing gegn ESB-aðild stofnuð „Allt járn var orðið ryðgað“ Dómararnir ekki nógu góðir á HM Ronaldo skaut föstum skotum á blaðamann Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Krefst uppsagnar leigusamnings Var á göngu með syni sínum Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum

Share this article