Héraðsdómur Suðurlands kvað á föstudag upp dóm í skaðabótamáli sem reist var vegna tjóns á vatnsleiðslu og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn eftir atvik þar sem akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 varð til þess að tjón varð á leiðslunum. Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar þar sem birt er yfirlýsing í nafni Hugins. Dómurinn hefur enn ekki verið birtur á vef Héraðsdóms Suðurlands. Ekki fallist á að Vinnslustöðin hf. teldist útgerðarmaður Hugins VE 55 „Vinnslustöðin hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. voru sýknuð af kröfum stefnenda og viðurkennt að Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. væri heimilt að takmarka ábyrgð sína. Þá féllst dómurinn ekki á að Vinnslustöðin hf. teldist útgerðarmaður skipsins. Málskostnaður var felldur niður,“ segir á vsv.is. Fordæmisgefandi varðandi bótaábyrgð „Við teljum að dómurinn sé mikilvægt skref í úrlausn málsins. Jafnframt liggur fyrir að um er að ræða flókið og fordæmisgefandi mál sem varðar álitaefni um bótaábyrgð og ábyrgð vátryggjanda og líklegt er að fái endanlega úrlausn fyrir æðra dómsvaldi,“ segir áfram á vef Vinnslustöðvarinnar þar sem vitnað er í yfirlýsingu Hugins. Reikna með að málinu verði áfrýjað „Við gerum ráð fyrir að málinu verði áfrýjað og teljum því ekki rétt að tjá okkur efnislega um niðurstöðu dómsins að svo stöddu. Útgerð Hugins VE mun áfram virða málsmeðferð dómstóla og bíða endanlegrar niðurstöðu áður en frekari athugasemdir verða gerðar.“