Innlent | mbl | 6.7.2026 | 13:13 Áfellisdómur yfir verklagi lögreglu Dómurinn var kveðinn upp þann 1. júlí síðastliðinn. Samsett mynd/Ólafur Árdal Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða manni eina milljón króna í miskabætur vegna alvarlegra annmarka á rannsókn lögreglu á hrottafenginni líkamsárás sem hann varð fyrir vorið 2020. Dómurinn var kveðinn upp þann 1. júlí en í honum segir að tafir á rannsókninni hafi verið með öllu þarflausar og að manninum hafi verið valdið mikilli óvirðingu og miklum andlegum óþægindum með vinnubrögðunum sem ríkissaksóknari felldi áfellisdóm yfir í áliti sínu. Tók hann í jörðina og sparkaði í hann Að kvöldi 14. apríl 2020 var maðurinn úti að ganga með hundinn sinn þegar hann tók eftir þremur bifreiðum sem lagt hafði verið við knattspyrnuvöll Laugarnesskóla í Reykjavík. Hann tók upp símann og smellti mynd af einni bifreiðinni. Í kjölfarið gekk til hans ókunnugur maður sem skipaði honum að hætta myndatökum og hrifsaði af honum símann. Maðurinn streittist á móti og náði að taka einstaklinginn niður en þá kom annar aftan að honum, tók hann í jörðina og sparkaði í síðuna á honum. Vitni sem lögregla ræddi síðar við lýsti því að hafa séð manninn liggjandi á jörðinni og þrjá til fjóra einstaklinga standa yfir honum, sparkandi og kýlandi. Annað vitni sagði einn drengjanna hafa komið aftan að manninum og sparkað í hann nokkrum sinnum áður en hann féll í jörðina og mögulega einnig þar sem hann lá. Tók vitnið sérstaklega fram að maðurinn hefði ekki verið að veitast að drengjunum með ofbeldi, heldur einungis reynt að ná símanum sínum til baka. Daginn eftir leitaði maðurinn á heilsugæslu. Myndgreining staðfesti rifbrot í vinstri síðu auk áverka í andliti og á baki. Miklar tafir á rannsókn Það er hins vegar það sem gerðist, eða öllu heldur gerðist ekki, eftir árásina sem varð tilefni málsóknarinnar gegn ríkinu. Í dómnum er rakið að rannsókn málsins hafi legið niðri í rúmlega níu mánuði, frá árásardeginum 15. apríl 2020 til 25. janúar 2021. Þá var aftur gert hlé á rannsókninni í tvo mánuði og loks enn eitt hléið í rúma sjö mánuði, fram í nóvember 2021, þegar loks voru teknar skýrslur af fjórum vitnum. Þær skýrslutökur voru óformlegar og fóru fram símleiðis. Lykilvitni að hrottafenginni líkamsárás, sem lýstu því að fleiri en einn hefðu sparkað í liggjandi mann, voru þannig aldrei boðuð til formlegrar skýrslutöku. Ákæra gefin út 2 árum seinna Ákæra var ekki gefin út fyrr en rúmlega tveimur árum eftir að árásin átti sér stað og þá aðeins á hendur einum manni, þrátt fyrir að framburðir vitna bentu til þess að fleiri en einn hafi komið að. Var sá einstaklingur sakfelldur í nóvember 2022 fyrir að hafa slegið brotaþola með krepptum hnefa í andlitið, hrifsað af honum símann og sparkað í hann liggjandi. Dómari málsins leit aftur á móti svo á að ákæruvaldið hefði ekki fært fullnægjandi sönnur fyrir því að ákærði hefði veist með ítrekuðum höggum að stefnanda er hann lá í jörðinni. Enn fremur var talið ósannað að rifbeinsbrot mannsins væri afleiðing sparks ákærða. Sat ekki aðgerðalaus Maðurinn sat ekki aðgerðalaus. Hann sendi lögreglustjóra ítrekuð erindi þar sem hann gerði athugasemdir við gang rannsóknarinnar, kvartaði til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu og leitaði til umboðsmanns Alþingis og ríkissaksóknara. Svar ríkissaksóknara, sem barst í nóvember 2024, var afdráttarlaust: Alvarlegir annmarkar hefðu verið á rannsókn málsins og meðferð ákæruvalds. Rannsóknin hefði hvorki verið nægilega ítarleg né framkvæmd innan hæfilegs tíma og ákæra hefði verið gefin út án þess að búið væri að skapa grundvöll til að taka ákvörðun um hana. Langur málsmeðferðartími hefði verið til þess fallinn að rýra rétt brotaþola og líklegur til að leiða til þess að brotið gegn honum yrði ekki upplýst sem skyldi. Héraðsdómur tók í meginatriðum undir þetta mat. Í niðurstöðu dómsins segir að tafirnar hafi verið með öllu þarflausar og að ekkert í málinu skýri þær eða réttlæti. Gangur rannsóknarinnar hafi verið þvert á grundvallarreglur um málshraða og falið í sér ámælisvert skeytingarleysi lögreglu við rannsókn á alvarlegri líkamsárás. Voru skýringar ríkisins um hugsanlegt verkefnaálag vegna Covid-faraldursins taldar haldlausar og dómari sagði verklag lögreglu í málinu vera til þess fallið að draga úr nauðsynlegu trausti til lögreglu. Í dómnum segir enn frakar að miskabótakrafan byggi á því að stefnanda hafi verið valdið mikilli óvirðingu og miklum andlegum óþægindum með þeim vinnubrögðum, sem búið er að fella áfellisdóm yfir með áliti ríkissaksóknara. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Besta útileguveðrið líklega fyrir austan Í fyrsta sinn í 36 ár Þorgerður fundaði með Bretum um varnarmál Áfellisdómur yfir verklagi lögreglu Högni og Snæfríður selja 149 milljóna lúxusíbúð Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umferðarþyngsta helgi ársins Krefst uppsagnar leigusamnings „Helgin mjög krefjandi“ Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Vilja ný tilboð í tröppurnar „Allt járn var orðið ryðgað“ Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Besta útileguveðrið líklega fyrir austan Í fyrsta sinn í 36 ár Þorgerður fundaði með Bretum um varnarmál Áfellisdómur yfir verklagi lögreglu Högni og Snæfríður selja 149 milljóna lúxusíbúð Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi „Allt járn var orðið ryðgað“ Viðbragðsáætlun virkjuð Baðstemning á höfninni Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Vilja ný tilboð í tröppurnar „Allt járn var orðið ryðgað“ Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum