Úkraínski flugherinn segir skort á loftvarnarflaugum hafa orðið til þess að ekki tókst að skjóta niður neinar eldflaugar í stórfelldri árás Rússa á Kyiv í gærkvöld. Forseti landsins varar við áframhaldandi árásum næstu daga. Í það minnsta átján voru drepnir og tugir særðust þegar Rússar gerðu miklar flugskeyta- og drónaárásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Þetta er önnur stóra árásin á Kyiv á innan við viku en á fimmtudag voru 31 drepnir þegar Rússar gerðu umfangsmestu árás á borgina frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022. Í samtali við erlenda fjölmiðla segir úkraínski flugherinn alvarlegan skort á loftvarnarflaugum hafa verið ástæðu þess að ekki tókst að skjóta niður neina af þeim 23 eldflaugum sem Rússar skutu á Kænugarð í gær. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, segir árásina hafa samanstaðið af 68 eldflaugum og 351 árásardróna. Hann segir nóttina hafa verið ógnvekjandi fyrir íbúa borgarinnar. Fjöldi dróna hafnaði á fjölbýlishúsum og björgunarsveitir reyndu að ná til fólks sem sat fast undir rútunum. Zelensky hefur hvatt bandamenn Úkraínu til að efla stuðning sinn við loftvarnarkerfi landsins og koma þannig í veg fyrir frekari eyðileggingu af völdum rússneska hersins.
This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing sustained Russian missile and drone attacks on Kyiv. The primary attack vectors are cruise missiles and Shahed-type drones, with the Ukrainian Air Force citing a critical shortage of air defense missiles as the key operational vulnerability preventing effective interception. The report urges allies to bolster support for Ukraine's air defense systems to mitigate further infrastructure destruction and civilian casualties.