Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hundruð þúsunda fyrir borðið

Read Full Article →

Erlent | mbl | 6.7.2026 | 14:00 Hundruð þúsunda fyrir borðið í Ósló Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Hér ríkir svo mikið HM-æði að það var eiginlega ekki hægt að koma sér neins staðar fyrir. Við vildum koma okkur í einhverja stemmningu þar sem væri eitthvert fólk,“ segir Ólafur Pálsson, löngu kunnur fyrir störf sín sem blaðamaður á Morgunblaðinu, í samtali við mbl.is þar sem hann er staddur í Ósló í stærstu knattspyrnuveislu sem Norðmenn hafa fram til þessa haft ástæðu til að halda. Segir Ólafur löngu hafa verið uppselt á Ullev ål- leikvanginn, sem tók við 35.000 manns í gær, þegar þau þrjú af fjórum systkinum mættu til leiks þannig að þau hafi gert sér torgið framan við Ráðhúsið í Ósló að góðu sem þó tók við 50.000 manns í gærkvöldi sem horfðu á leik Norðmanna og Brasilíumanna. Norðmenn eru kampakátir með árangur sinna manna á HM. AFP Frétt af mbl.is Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent „Partýið var á Ullev ål, þar var áfengi veitt og allt það, en við systkinin máttum láta okkur lynda fjölskyldustemmninguna við ráðhúsið þar sem leitað var að áfengi og því hellt niður. Við vorum komin niður í bæ klukkan hálfsjö og opnað var inn á svæðið klukkan sjö, þremur klukkustundum fyrir leik. Þetta var vel skipulagt, þrír inngangar og þrjár raðir og ég held að sú lengsta hafi verið um 700 metrar,“ segir Ólafur frá. Bræðurnir Pálsson, þeir Ólafur, vinstra megin, og Bogi, lögðu knattspyrnuna í gær að baki sér og gengu til knattleika í Hauger-golfklúbbnum í dag með kylfurnar á lofti. Ljósmynd/Aðsend 100.000 manns á Karls Jóhannsgötu Eftir leikinn safnaðist pupullinn saman á Karls Jóhannsgötu þar sem Ólafur segir haf fólks hafa myndast og þúsundir manna tekið hið fræga róðraratriði Norðmanna sem notað hefur verið til að keyra upp stemmninguna fyrir hvern leik Norðmanna, hundrað þúsund manns í gær en að sögn Ólafs kom Haraldur konungur þó ekki út á svalir hallarinnar. Hins vegar segir hann Hákon krónprins hafa gengið út og tekið þátt í róðrinum sem ekki hefur verið óumdeildur. Frétt af mbl.is Maðurinn sem bauð Noregi birginn Ólafur segir skipulagið við ráðhúsið hafa verið kynlegt. „Þetta var mjög áhugaverð framkoma, Norðmenn eru nú ekki eins og allir aðrir, þarna áttu allir að sitja, okkur var bara skipað að setjast á götuna eins og leikskólabörn og við lentum í smá rifrildi við fólk þarna því okkur leist ekki á þetta en létum þó til leiðast og settumst,“ segir hann frá. Fyrirkomulagið hafi gengið nokkurn veginn átakalaust þar til Erling Braut Haaland skoraði fyrra mark sitt í leiknum. „Þá stóðu allir upp á sama tíma og hrundu um hver annan þveran og kom upp hálfgert öngþveiti svo þessu lauk nú með því að við Íslendingarnir fengum það í gegn að áhorfendur stóðu það sem eftir lifði leiks,“ segir Ólafur og hlær við en lætur þó vel af heildarskipulagi, svæðinu hafi verið skipt niður í þrjú hólf og norska ríkisútvarpið NRK verið með útsendingu sem skotið var inn í sýningu leiksins og stemmningin á Ullev ål verið sýnd þar inn á milli. Eins og ein stór dimmisjón „Það var geggjuð stemmning í Ósló í gær, við þurftum nú að fara snemma til að koma okkur heim tímanlega og stemmningin á neðanjarðarlestarstöðvunum var svakaleg, með þeim kom allur hópurinn frá Ullev ål niður í bæ,“ segir Ólafur og bætir því við að yngri kynslóðin hafi verið mest áberandi í miðbænum. „Þetta var eiginlega eins og ein stór dimmisjón,“ segir Ólafur og lýkur máli sínu á lýsandi sögu af HM-æði Norðmanna. Frétt af mbl.is Ævintýri Norðmanna heldur áfram „Selt var inn á veitingastaðina fyrir ótrúlegt verð. Ég heyrði sögu af einum stað þar sem átta manna borð kostaði 15.000 norskar [191.000 ISK]. Inni í því voru sextán litlir bjórar, fjórir mjög stórir bjórar, 0,75 lítrar, og þrjár freyðivínsflöskur, það var nú allt og sumt, og þetta var ekki það ódýrasta, verið var að selja svona pakka á bilinu 10.000 til 40 eða 50.000 krónur [127.000 til 637.000 ISK], verð sem fólk var að greiða fyrir átta til tíu manna borð,“ segir Ólafur Pálsson að lokum í króniku sinni frá Ósló. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » HM hefur engin áhrif á Bestu deildina Lionel Richie á batavegi Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Hundruð þúsunda fyrir borðið Raddlaus Kane: Ég get ekki talað! Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verið rannsakað áður hér á landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Hundruð þúsunda fyrir borðið Áfellisdómur yfir verklagi lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent Varð fyrir flugeldi við lendingu Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Þúsundir flýja gróðurelda í Suður-Evrópu Skotinn til bana í Uppsala Wangen hlaut fimmtán ár Hætta leit að bandarískum sjóliða Rússar gerðu mannskæðar árásir á Kænugarð Vindhraði fór yfir 80 metra á sekúndu Lögregla skaut róstursegg í fótinn Lést eftir árás á Íslandsbryggju Gríðarstór fellibylur ríður yfir á morgun „Þetta er eins og krabbamein“ Fannst látinn á vinsælum ferðamannastað Þjóðverjar í stríð við veikindahlutfallið Hætta leit að bandarískum sjóliða Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Gróðureldar herja á meginland Evrópu Varð fyrir flugeldi við lendingu Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Lést eftir árás á Íslandsbryggju Sextán börnum bjargað úr „skelfilegum aðstæðum“ Gríðarstór fellibylur ríður yfir á morgun Finnar skella á eftir 150 ár Flugmaðurinn glímdi við andleg veikindi Umdeilt ferðalag til Íslands „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Allt á floti á Kastrup Fimm látnir í Belgíu: „Gríðarlega svartur reykur“ Segir hermenn pyntaða og hótar Pútín Nýjast á mbl.is » HM hefur engin áhrif á Bestu deildina Lionel Richie á batavegi Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Hundruð þúsunda fyrir borðið Raddlaus Kane: Ég get ekki talað! Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Fjöldahreyfing gegn ESB-aðild stofnuð Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Mest lesið Í gær Í vikunni Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent Varð fyrir flugeldi við lendingu Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Þúsundir flýja gróðurelda í Suður-Evrópu Skotinn til bana í Uppsala Wangen hlaut fimmtán ár Hætta leit að bandarískum sjóliða Rússar gerðu mannskæðar árásir á Kænugarð Vindhraði fór yfir 80 metra á sekúndu Lögregla skaut róstursegg í fótinn Lést eftir árás á Íslandsbryggju Gríðarstór fellibylur ríður yfir á morgun „Þetta er eins og krabbamein“ Fannst látinn á vinsælum ferðamannastað Þjóðverjar í stríð við veikindahlutfallið Hætta leit að bandarískum sjóliða Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Gróðureldar herja á meginland Evrópu Varð fyrir flugeldi við lendingu Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Lést eftir árás á Íslandsbryggju Sextán börnum bjargað úr „skelfilegum aðstæðum“ Gríðarstór fellibylur ríður yfir á morgun Finnar skella á eftir 150 ár Flugmaðurinn glímdi við andleg veikindi Umdeilt ferðalag til Íslands „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Allt á floti á Kastrup Fimm látnir í Belgíu: „Gríðarlega svartur reykur“ Segir hermenn pyntaða og hótar Pútín

Share this article