Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Ísfélagsins hækkar um 5%

  • What: Stock prices of Icelandic companies rise
  • Impact: Reflects positive performance of Icelandic businesses
Read Full Article →

Ísfélagið hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar í viðskiptum dagsins en gengi hlutabréfa útgerðarfélagsins hækkaði um 5,2% í tæplega 150 milljóna króna veltu og stendur nú í 162 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur hækkað um 22% í ár og ekki verið hærra síðan í október 2024. Hlutabréf Síldarvinnslunnar og Brims og hækkuðu sömuleiðis um meira en 2% í dag. Gengi SVN hefur hækkað um 28% í ár og Brims um 24%. Loðnuveiðar og hátt afurðaverð eru meðal þátta sem hafa stuðlað að bættri afkomu hjá útgerðarfélögunum upp á síðkastið. Ísfélagið var skráð í Kauphöllina í árslok 2023 að undangengnu 18 milljarða króna hlutafjárútboði þar sem útboðsgengi var 135 krónur á hlut í bók A, fyrir almenna fjárfesta, og 155 krónur á hlut í bók B. Markaðsgengi Ísfélagsins er í dag 20% yfir útboðsgenginu í bók A og 4,5% yfir útboðsgenginu í bók B. Kvika banki hækkaði næst mest á eftir útgerðarfélögunum eða um 2,2% í 260 milljóna króna veltu og stendur gengi bankans nú í 13,65 krónum á hlut. Kvika tilkynnti eftir lokun markaða á föstudaginn um 2 milljarða króna endurkaupaáætlun. Hlutabréfaverð Skaga, JBT Marels og Amaroq hækkaði einnig um meira en 2% í dag. Gengi Alvotech hækkaði næst mest eða um 1,5% í 42 milljóna króna veltu og stendur nú í 453 krónum á hlut.

Share this article