Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ís­land í meistara­deild en ESB í miðri annarri deild

Read Full Article →

Halldór Benjamín Þorbergsson, einn aðstandenda Áfram Ísland, sagði á upphafsfundi hreyfingarinnar að Íslandi sé fullfært um að sækja fram á eigin forsendum og takast á við þær áskoranir sem við blasa hverju sinni, án þess að vera hluti af Evrópusambandinu. Honum sárni þegar fólk gefi annað í skyn. „Við þurfum nefnilega að átta okkur á því hvað við höfum áorkað síðustu áratugi og standa vörð um þann mikla árangur. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé sannarlega land tækifæranna og að hagsmunum Íslands og íslensku þjóðarinnar sé best borgið utan ESB vegna þess að við höfum trú á Íslandi.“ Sjá einnig Beint: Upp­hafs­fundur Áfram Ís­land Halldór Benjamín dró upp mynd af afa sínum sem var háseti á togurum Alliance í fjóra áratugi, lengst af á togaranum Jóni forseta. Hann sagði samfélagið hafa tekið við keflinu af fyrri kynslóðum sem hafi svo sannarlega haft trú á Íslandi. „Mér sárnar þegar ég les í blöðum skoðanapistla um að Íslendingar séu ófærir um að stýra sínum málum sjálfir. Á þeim grunni neita ég að horfast í augu við framtíð Íslands. Við viljum færa börnum okkar og barnabörnum sjálfsákvörðunarréttinn sem við töldum eðlilegt að fá í arf frá fyrri kynslóðum,“ sagði Halldór Benjamín. „Það þýðir að með honum gerum við okkar eigin samninga við aðrar þjóðir. Við keyrum okkar eigin stefnu í mannréttinda- og umhverfismálum, tryggjum aðgengi að mörkuðum og samstarfi í vísindum og menntun - við Íslendingar þrífumst á samstarfi við aðrar þjóðir. Þar býr vinátta og hlýhugur að baki og við Íslendingar mælumst sem eitt friðsælasta land í heimi sem skiptir máli í breyttri heimsmynd.“ Með fórnfýsi þeirra sem á undan okkur komið hafi tekist að byggja upp ein bestu lífskjör á heimi á Íslandi. „Við erum í algjörum sérflokki þegar kemur að samanburði við aðrar þjóðir, svo að ég tali nú ekki um þjóðir innan Evrópusambandsins. Við erum í meistaradeild. Evrópusambandið í núverandi formi er í besta falli að keppa um miðja aðra deild. Löndin sem bíða á biðlistanum og eru næst inn í Evrópusambandið, það eru lið sem keppa í efnahagslegri utandeild.” Halldór Benjamín sagði Áfram Ísland ætla að standa fyrir jákvæðum og uppbyggilegum málflutningi. „Ég hafna þeirri kenningu sem rangri að það þurfi að níða skóinn á náunganum, að það þurfi að leggjast í einhvern drullupytt til þess að geta náð árangri í þessari umræðu. Við tölum á málefnalegum, yfirveguðum og jákvæðum nótum. Við tölum við fólkið í landinu en ekki yfir það.”

Share this article