Innlent | mbl | 6.7.2026 | 19:18 Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Endurreisa þarf fjölda húsa í Grindavík. mbl.is/Eyþór Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Atburðarásin eins og í bíómynd Myndskeið: Unnið að sprungufyllingum í Grindavík Skjálftahrina á Reykjanesskaga og nálægt Húsafelli » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið » Fleiri tengdar fréttir Pétur G. Markan, verðandi bæjarstjóri Grindavíkur, segir að sitt helsta verkefni sem bæjarstjóri verði að leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur til framtíðar í samstarfi við kjörna fulltrúa, starfsfólk sveitarfélagsins, íbúa, atvinnulíf og stjórnvöld. Pétur mun formlega taka við keflinu af Fannari Jónassyni á bæjarstjórnarfundi á morgun, en sem bæjarstjóri hefur Fannar óneitanlega verið andlit bæjarins út á við í gegnum tíma mikilla erfiðleika. Þrjú ár verða í haust liðin frá því að bærinn var rýmdur með tilheyrandi áhrifum og óvissu fyrir bæjarbúa, sem margir hverjir vilja nú fá að snúa aftur heim til Grindavíkur. Pétur segir Grindavík og Grindvíkinga vera einstaka í alla staði. Samfélag þeirra sé samheldið og að það hafi sýnt einstaka þrautseigju í gegnum fordæmalausa tíma og að mikill heiður sé að fá að leiða þannig samfélag. Frétt af mbl.is Segja stjórnvöld standa í vegi fyrir Grindvíkingum Pétur G. Markan. Ljósmynd/Aðsend Stærsta verkefnið að varða leiðina heim „Helsta verkefnið er bara uppbygging og endurreisn samfélagsins og í því felst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga. Við viljum líta til framtíðar og byggja upp, enda hverfist samfélagssáttmáli bæjarstjórnar um þau verkefni,“ segir Pétur í samtali við mbl.is. Ýmis mál bíða Péturs sem bæjarstjóra en útlit er fyrir að frá og með 1. september verði Grindvíkingum meinað að gista fleiri en 12 nætur í mánuði í eignum sínum samkvæmt uppfærðum hollvinasamningum Fasteignafélagsins Þórkötlu við íbúa bæjarins og segir Pétur nauðsynlegt að undið verði ofan af þeim fyrirætlunum sem fyrst. Þórkatla vinnur nú einnig að endurkaupaáætlun fyrir Grindvíkinga, þar sem fyrri eigendum eignanna verður boðið að kaupa þær til baka. Áætlunin átti að vera kynnt í byrjun árs 2026 en hún hefur ekki enn litið dagsins ljós þótt langt sé liðið á árið. Frétt af mbl.is Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Grindvíkingar hafa harðlega gagnrýnt þann seinagang sem orðið hefur á kynningu áætlunarinnar og segir Pétur að kynna verði hana sem allra fyrst til þess að tryggja það að fólk geti farið að snúa aftur til bæjarins og til að auka fyrirsjáanleika fyrir íbúa. „Það liggur fyrir að Þórkatla er að fara að kynna og vinna með Grindvíkingum endurkaupaáætlun og í raun og veru þyrfti kannski bara samhliða því að vinna einhvers konar endurleiguáætlun líka, þannig að fólki gefist kostur á að endurleigja fyrst. Þetta eru mikilvæg verkefni sem að finna þarf út úr sem allra fyrst til þess að varða endurkomuna og tryggja það að fólk geti komið aftur til bæjarins,“ segir Pétur. Stefnt er að skólahaldi sem fyrst í bænum þrátt fyrir að stjórnvöld telji enn áhættusamt fyrir börn að vera í bænum. mbl.is/Eyþór Skólahald í fyrirrúmi Unnið hefur verið að viðgerðum á skólahúsum bæjarins sem skemmdust töluvert í eldsumbrotunum og jarðhræringunum árið 2023. Þó nokkur fjöldi barna er nú forskráður í leik- og grunnskóla bæjarins fyrir komandi haust, en ríkisstjórnin og Grindavíkurnefnd hafa mælst gegn því að skólahald verði hafið að nýju þar sem ekki sé talið öruggt að stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Pétur segir engu að síður stefnt að því að skólar bæjarins verði opnaðir sem fyrst. „Það er bara mjög mikilvægt að skólahald geti hafist sem fyrst í bænum. Það er eitt af stóru verkefnunum við það að fólk flytji heim. Í Grindavík eru líka mikil gæði í skólastarfi og hafa verið, þannig að það er eftir miklu að sækjast fyrir fólk að koma heim.“ Ásýnd bæjarins hefur breyst mikið eftir að eldsumbrotin hófust. mbl.is/Eyþór Bjartsýnn á framhaldið Pétur segir jafnframt að gengið hafi vel að fylla í þær sprungur sem opnuðust í bænum og framkvæmdir séu jafnframt hafnar við það að endurbyggja þau hús bæjarins sem ekki þóttu íbúðarhæf. „Það á að vinna nýtt áhættumat á bænum og það mun vonandi verða kynnt nú í sumar og ég hef mikla trú á að þá verði einhverjar jákvæðar vendingar þá,“ segir Pétur. „Það er mikill sláttur í atvinnulífi bæjarins og það er ótrúlegt hvað menn hafa barist og í ekki gefið eftir í þessu öllu. Það er algjörlega til fyrirmyndar og við ætlum að halda þeirri baráttu áfram. Þetta snýst allt um að líta til framtíðar og byggja bæinn upp en Grindavík er náttúrulega eitt öflugasta samfélag landsins og við stefnum á að gera það enn öflugra.“ Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Atburðarásin eins og í bíómynd Myndskeið: Unnið að sprungufyllingum í Grindavík Skjálftahrina á Reykjanesskaga og nálægt Húsafelli » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vakti athygli í sundbol eftir mikið þyngdartap Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Mbappé: „Þú ert fyrirlitleg kona“ Portúgal - Spánn, staðan er 0:0 Kobbi og Kórinn leiða B-flokkinn Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vettvangsvinnu lokið í Suðursveit Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Allir farþegar undirgangast læknisskoðun „Allt járn var orðið ryðgað“ Vilja ný tilboð í tröppurnar Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Nýjast á mbl.is » Vakti athygli í sundbol eftir mikið þyngdartap Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Mbappé: „Þú ert fyrirlitleg kona“ Portúgal - Spánn, staðan er 0:0 Kobbi og Kórinn leiða B-flokkinn Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Getur tekið allt að sex mánuði að ljúka rannsókn Viðbragðsáætlun virkjuð Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk „Helgin mjög krefjandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Allir farþegar undirgangast læknisskoðun „Allt járn var orðið ryðgað“ Vilja ný tilboð í tröppurnar Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn