Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nanitor meðal leiðandi lausna í Evrópu

  • What: Icelandic cybersecurity company Nanitor is recognized as a European leader in threat management
  • Impact: Recognized by ECSO in CyberHive Matrix 2026
Read Full Article →

Íslenska netöryggisfyrirtækið Nanitor hefur verið sett í flokk leiðandi evrópskra lausna (European Leaders Area) fyrir veikleikastýringu í CyberHive Matrix 2026, óháðri úttekt Evrópsku netöryggissamtakanna ECSO (European Cyber Security Organisation). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu félagsins. CyberHive Matrix er gefin út árlega og er óháð og gagnsæ yfirlitsmynd af evrópska netöryggismarkaðnum. Lausnir eru metnar út frá tveimur ásum, notendaupplifun og evrópsku viðbúnaðarstigi, og þær lausnir sem standa sterkast að vígi eru settar í flokk leiðandi lausna. „Það er mikill heiður að vera í hópi leiðandi lausna í Evrópu í óháðri úttekt sem þessari. Þessi viðurkenning er ekki okkar ein. Hún er staðfesting á því sem viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar hafa hjálpað okkur að byggja upp, vettvang sem veitir raunverulega yfirsýn og stjórn yfir allt árásaryfirborðið. Við ætlum að vera áframí forystu í þessum flokki," segir Heimir Fannar Gunnlaugsson, forstjóri Nanitor. Nanitor er hugbúnaðarlausn fyrir samfellda áhættustýringu vegna netógna (CTEM) sem eykur netöryggi með því að veita einstaka yfirsýn og stjórn yfir upplýsingatækniumhverfi fyrirtækja. Áherslan er á eignamiðaða forgangsröðun, allt frá netþjónum, endapunktum og gagnagrunnum til neta og skýja, til að hjálpa fyrirtækjum að verja umhverfi sitt á árangursríkan hátt. Vettvangurinn sameinar meðal annars stillingastýringu, veikleikastýringu, plástursgreind og regluverk í eina heildstæða lausn.

Share this article