Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Farage segir af sér og knýr fram aukakosningar

  • What: Nigel Farage steps down from parliamentary seat and announces additional elections
  • Impact: Political developments in the UK
Read Full Article →

Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins (Reform) í Bretlandi, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku fyrir Clacton og kalla þar með fram aukakosningar í kjördæminu, þar sem hann hyggst bjóða sig fram aftur. Þetta tilkynnti hann í ávarpi sem Reform sendi frá sér. Lýsti 5 milljóna punda gjöf sem „lottóvinningi“ Í ávarpinu varði Farage 5 milljóna punda gjöf, eða sem nemur 840 milljónum króna, sem hann fékk frá auðkýfingnum Christopher Harborne og lýsti henni sem „lottóvinningi“. „Undanfarin tíu ár hefur mér vegnað vel fjárhagslega. En það eitt og sér ætti ekki að teljast glæpur. Og já, ég fékk það sem jafna má við lottóvinning, stóra persónulega gjöf.“ Hann sagðist hafa þurft á tíma sínum sem stjórnmálamaður utan þingsins að eyða miklum fjármunum í öryggisgæslu. Hann sagðist ekki hafa fengið aðstoð frá ríkinu þrátt fyrir morðhótanir og netinu og þakkaði Harborne fyrir að þurfa ekki að búa við fjárhagslega óvissu lengur. Farage fordæmdi The Times fyrir að birta mynd af heimili dóttur hans og sagðist aldrei hafa verið reiðari út í fjölmiðla. Hann sakaði jafnframt Sky News um að sitja um dóttur sína. Farage sagðist hafa íhugað að flytja til Bandaríkjanna og taka þar við boðum um hálaunuð störf. „Síðan fór ég að velta því fyrir mér, hvers vegna ég ætti núna eða í framtíðinni að vera dæmdur af Sky News eða öðrum fjölmiðla. Hvers vegna ættu þeir að ráða örlögum mínum þegar ég ítreka að ég hef ekkert rangt gert? […] „Þetta verða aukakosningar þar sem almenningur tekst á við valdaelítuna. Þetta er tækifæri til að sýna allri valdaelítunni fingurinn, hreint út sagt að segja henni hvert hún geti farið. Þess vegna mun ég bjóða mig fram í þessum aukakosningum. Ég mun berjast til sigurs og halda áfram þeirri pólitísku byltingu sem Reform hefur hrundið af stað.“ A statement from Nigel Farage about his future. https://t.co/gNSqhWwdXC — Reform UK (@reformparty_uk) July 7, 2026

Share this article