Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að stéttarfélagið hafi ekki neitt annað tæki en að krefjast hærri launa í ljósi verð og gjaldahækkana fyrirtækja og stjórnvalda. „Það er ekki endilega það besta í stöðunni sem nú er uppi, en er smám saman að verða það eina í stöðunni,“ skrifar Halla í færslu á Facebook. Allt stefnir í að forsenduákvæði kjarasamninga á almennum kjarasamningi muni virkjast í ágúst en verðbólga hefur nú mælst yfir 5% undanfarna sex mánuði. Verðbólga í júní mældist 5,2%. Umrætt ákvæði mun virkjast ef ársverðbólga mælist yfir 4,7% í næstkomandi ágústmælingu Hagstofunnar eða ef verðbólga frá mars-ágúst verður yfir 4,4% miðað við árshraða. Sjá einnig Forsenduákvæðið virkjast Ríki og sveitarfélög stundi grimmt að hækka skatta Í færslunni gagnrýnir Halla sérstaklega áformaða hækkun komugjalda í heilsugæslu og fyrirhuguð veggjöld. „Ríkisstjórnin lofar því að hækka ekki skatta en tvöfaldar komugjöld á heilsugæsluna, býr til ný komugjöld og setur á stofn innviðafélag sem á að rukka vegfarendur hist og her til að fjármagna nauðsynlegar vegaframkvæmdir. Að hækka gjöld og skerða þjónustu er ígildi skattahækkana, og bæði ríki og sveitarfélög stunda þetta grimmt þessi misserin.“ Halla segir stjórnvöld ekki hafa staðið undir sínum skuldbindingum „og það, ásamt gróðasókn fyrirtækja, veldur því að forsendur kjarasamninga bresta í haust“.