Energy Observer 1 er komið til Reykjavíkur og verður til sýnis við Miðbakka í Gömlu höfninni dagana 8.–12. júlí. Þar gefst tækifæri til að sjá skipið og kynnast því hvernig ný tækni og hreinir orkugjafar geta mótað framtíð siglinga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Þar segir að Energy Observer 1 sé brautryðjandaskip og fljótandi tilrauna- og rannsóknarvettvangur. Frá því skipið var sjósett árið 2017 hefur það ferðast um heiminn til að rannsaka og sýna lausnir sem geta dregið úr kolefnislosun í siglingum. Það var fyrsta skip heims sem sameinaði um borð vetnisorkukerfi, endurnýjanlega orkugjafa og vindknúna aðstoð við siglingar. Heimsóknin til Íslands markar lok fyrsta kafla leiðangurs verkefnisins A Journey to Carbon Neutrality, Leiðin að kolefnishlutleysi, þar sem rannsakaðar eru mismunandi leiðir að kolefnishlutleysi. Á Íslandi mun teymið meðal annars kynna nýjustu þróun í beinni föngun koltvísýrings úr andrúmsloftinu og varanlegri bindingu þess hjá Climeworks og Carbfix. Frá Miðjarðarhafi til Reykjavíkur Fyrri hluti leiðangurs Engergy Observer var á Miðjarðarhafi þar sem sjónum var meðal annars beint að náttúrulegum kolefnisgeymum á borð við sjávargróður og vistkerfi hafsins. Síðari hlutinn hófst í London og þaðan lá leiðin til Antwerpen, Hamborgar, Óslóar og Þórshafnar í Færeyjum. Og nú er skipið í Reykjavík. Skipið kom til Reykjavíkur á mánudagskvöld og er nú við Miðbakka í hjarta Gömlu hafnarinnar. Þar geta gestir skoðað skipið og fræðst um verkefnið, leiðangur Energy Observer og orkulausnir framtíðarinnar í siglingum.