Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rýnt í stöðuna á útflutningi á óunnum fiski

Read Full Article →

Í kjölfar ummæla Ægis Páls Friðbertssonar, forstjóra Iceland Seafood á Sjávarútvegsráðstefnunni síðastliðið haust, að allt að um 50% meiri verðmæti fengjust fyrir unnar afurðir til útflutnings en óunninn fisk og þess mats hans að þessi mikli útflutningur á óunnum fiski gæti skaðað það góða orðspor sem fer af íslenskum sjávarafurðum, spratt upp mikil umræða um þessi mál. Oft áður höfðu þessi mál verið til umræðu. Nú hefur atvinnuvegaráðherra skipað starfshóp sem á að greina umfang útflutnings á óunnum fiski, meta áhrif á verðmætasköpun sérstaklega með tilliti til gæða, skoða eftirlit með fjárfestingum erlendra aðila, kortleggja með hvaða hætti eftirlit gæti nýst með betra aðgengi að tollaskýrslum, kortleggja leiðir til að draga úr óunnum fiski (og/eða að hluta til unnum) sem fluttur er úr landi og meta kosti þeirra og galla Í svörum atvinnuvegaráðuneytisins við fyrirspurnum Fiskifrétta segir að ráðherra vænti þess að starfshópurinn vinni hratt og örugglega. Hópurinn á að skila ráðherra yfirferð um þau atriði sem til umfjöllunar eru og koma með m.a. tillögur um leiðir til að draga úr vægi óunnins afla sem fluttur er úr landi, til bætts eftirlits með gæðum og til bætts eftirlits með útflutningi í gegnum aukið aðgengi að tollaskýrslum. Þar segir einnig að ráðherra telji mikilvægt að vernda orðspor og gæði íslenskra sjávarafurða sem geti skaðast ef fiskur sem seldur er sem íslenskur ferskur fiskur rýrnar vegna lengri flutnings, höndlunar eða ófullnægjandi kælingar. Ráðherra hafi áhyggjur af stöðunni, enda kunni verðmætasköpun innanlands að dragast saman, þar sem hráefni fari úr landi án fullvinnslu hér heima. Eitt þeirra atriða sem ráðherra væntir að komi til umræðu hjá starfshópnum er samning frumvarps um vinnuskyldu á bolfiski. „Þá er það einnig svo að eftirlit stjórnvalda nær ekki nægilega vel til allra kaupenda og milliliða, sérstaklega þegar fiskur er keyptur á innlendum fiskmörkuðum og fluttur út af aðilum sem ekki eru sjálfir útgerðir eða vinnslur. Aftur á móti má gera ráð fyrir því að auðveldara verði að hafa eftirlit með útflutningi eftir samþykkt frumvarps til laga um Stofnun atvinnuveganna, þar sem í lögunum er með skýrari hætti en áður kveðið á um heimild til þess að afla nauðsynlegra upplýsinga um útflutning á sjávarafurðum hjá tollayfirvöldum með stafrænum hætti.“

Share this article