Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Orðræða, pakki og kosningar

Read Full Article →

Það reynir á þjóð að eiga lýðræðislega og málefnalega orðræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo virðist sem tiltekinn hópur álitsgjafa telji sig hafa umboð til að vinsa úr hverjir séu þess verðugir að viðra skoðanir sínar fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Íslands. Birgir Ísleifur Gunnarsson ljósmyndari afgreiddi það ágætlega í skemmtilegri færslu á fésbók á dögunum. Hann rakti að svo virtist sem hvorki ungir né gamlir, efnaminni né efnameiri væru gjaldgengir í umræðunni og klykkti út með því að spyrja: „En hvernig fer maður þá að því að vera í nei-hópnum og fá yfir sig sem minnst af fúkyrðum? Hver væri til dæmis hinn „rétti“ prófíll fyrir mig. Gæti það verið háskólamenntaður miðaldra millistéttarmaður með engar tengingar við sjávarútveg eða landbúnað 6 ættliði aftur í tímann? Með flott úr en ekki of mikið inná bankabók? Er það eitthvað?“ Er til of mikils mælst að menn sem hampa lýðræðinu í öðru orðinu láti vera að svara í hinu með skætingi og persónurökum? Það hefur til dæmis ekkert með umræðuna að gera hvort menn voru á annarri skoðun fyrir rúmum þrjátíu árum. Það mætti eins halda hinu öndverða fram – að það sé til marks um þvermóðsku að skipta ekki um skoðun á þrjátíu árum. Og öfugt við það sem haldið er fram, þá getur það verið upplýst ákvörðun að hafna því að „kíkja í pakkann“. Enda ekkert launungarmál hvað Evrópusambandið stendur fyrir. Raunar er „pakkinn“ ærið lesefni fyrir þá sem vilja ýta fleytu sinni úr vör á því ómælishafi. Til marks um það má nefna að regluverk ESB (Acquis communautaire) teygir sig yfir 100 þúsund blaðsíður. Áætlað er að orðin í þessum himinháa blaðabunka reglugerða og tilskipana séu um 85 milljónir. Sá lestur myndi því taka manneskju sem les 250 orð á mínútu um 5.700 klukkutíma eða yfir 700 vinnudaga. Tíminn er því af skornum skammti fyrir þá sem vilja kíkja í „pakkann“ fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article