- What: Iceland's defense spending increase due to NATO budget changes
- Impact: Iceland's contribution to NATO defense spending has increased significantly
Innlent | mbl | 8.7.2026 | 15:36 Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Kristrún á milli Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO og Recep Tayyip Erdogans Tyrklandsforseta á leiðtogafundinum í Ankara. AFP/Ludovic Marin Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Varnaræfing hefst í ágúst „NATO er að breytast“ Handtóku tvo blaðamenn fyrir NATO-fundinn Þorgerður fundaði með Bretum um varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Breytingin sem hefur orðið á mælikvörðum Atlantshafsbandalagsins þegar kemur að varnarútgjöldum hefur mikil áhrif á hlutfallslegt framlag Íslands til varnartengdra útgjalda. Framlag Íslands til beinna varnarútgjalda náði ekki 0,1% af vergri landsframleiðslu (VLF) fyrir breytinguna en eftir hana hefur framlag okkar til varnartengdra útgjalda náð hátt í 1% af VLF. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir lykilskilaboðin út af fundinum annars vegar sterkt Atlantshafsbandalag sem hefur aldrei verið stærra, hvort sem horft sé til fjölda meðlima eða umfangs varnarmálaútgjalda sem tengjast bandalaginu, og hins vegar samstöðu og samhug. Það séu allir meðvitaðir um það að á tímum sem þessum þurfi bandamenn að standa saman. Frétt af mbl.is Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Að hluta til styrkt stöðu landsins Aðspurð segir Kristrún að það megi stilla því upp þannig að breytingin sem varð á mælikvörðum Atlantshafsbandalagsins í fyrra hafi að hluta til styrkt stöðu Íslands vegna þess að mikið af varnartengdum útgjöldum voru óuppgefin sem slík. „Stór hluti af þeirri vinnu sem er búin að eiga sér stað, bæði í aðdraganda síðasta leiðtogafundar og sérstaklega núna frá síðasta leiðtogafundi, er að skilgreina nákvæmlega hvað felst í varnarútgjöldum og varnartengdum útgjöldum. Þá kemur einfaldlega í ljós að Ísland hefur verið að standa sig mjög vel á þennan mælikvarða. Við höfum verið með mikið af fjárfestingu í getu innviða, á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og öðrum þáttum sem hafa tvíþætt notagildi. Við höfum líka verið að bæta í þegar kemur að beinum fjárframlögum í slíkar fjárfestingar frá því að ríkisstjórnin tók við völdum og svo telst auðvitað líka til stuðningur okkar við Úkraínu, við PURL, sem er prógramm Bandaríkjanna í tengslum við NATO og búnaðarkaup vegna Úkraínu.“ Þannig segir ráðherra að sú staðreynd að Ísland sé komið hátt í 1% sé blanda af því að við höfum verið að standa okkur ágætlega og því að loksins fáum við mælikvarða á það sem kannski áður var ekki til. „Við höfum gefið almennilega í svo eftir því er tekið. Við höfum góða sögu að segja en auðvitað er þetta stöðug vinna að mæta á svona fundi, á fleiri fundi í aðdraganda svona funda og að halda sérstöðu okkar á lofti vegna þess að það eru mjög mikilvæg skilaboð til Íslendinga að eðli okkar útgjalda er ekki beint að breytast. Það er enginn að gera kröfu til Íslands um að við stofnum her, að við séum með varnarmálaframleiðslu eða með hagkerfi sem er rekið í tengslum við þessi beinu varnartengdu útgjöld eins og önnur lönd en fólk gerir þá kröfu að þegar önnur lönd í kringum okkur eru að stíga upp í þessum útgjöldum að við veitum aðstöðu. Ef þau eru að koma hér oftar eða sinna Norðurslóðum meira þá reynir auðvitað meira á aðstöðuna okkar og fjárfestingar og það bara mælist í þessum tölum.“ NATO'nun en genç lideri olan 38 yaşındaki İzlanda Başbakanı Kristrún Frostadóttir, Cumhurbaşkanı Erdoğan tarafından resmi törenle karşılandı. Frostadóttir ile ABD Başkanı Trump da bizzat yanına gelerek tokalaştı. #Nato #Erdoğan #Frostadóttir #Trump pic.twitter.com/RCrdyh5lnh — İhlas Haber Ajansı (@ihacomtr) July 8, 2026 Getur nýst í borgaralegum tilgangi Eru einhverjar nýframkvæmdir eða nýjar fjárfestingar inni í þessari nærri 1% tölu? „Það er auðvitað ýmislegt sem hefur verið ráðist í á Keflavíkurstöðinni sem er komið þarna inn og svo eru fleiri fjárfestingar í þáttum sem hafa verið gefnir upp sem fara þarna inn í. Mikilvægustu skilaboðin eru að það er ekki eðlisbreyting á framlagi Íslands til varnarmála. Það er vissulega krafa um aukin útgjöld til að sinna þeim auknu beinu varnarútgjöldum sem okkar bandamenn eru að gefa upp sem þýðir að við þurfum að styrkja okkar aðstöðu. Við höfum staðið okkur ágætlega hingað til en við þurfum að standa okkur ennþá betur. Mikið af þessu mælist í almennum umsvifum á Íslandi, þessu tvíhliða notagildi. Í einhverjum tilvikum eru það þættir sem notast í borgaralegum tilgangi líka, þannig að þetta styrkir Ísland,“ segir Kristrún. Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Varnaræfing hefst í ágúst „NATO er að breytast“ Handtóku tvo blaðamenn fyrir NATO-fundinn Þorgerður fundaði með Bretum um varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lionel Messi toppaði sjálfan sig Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íran gerði árásir á bandarískar herstöðvar Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Leita enn að flutningavélinni Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nálgunarbanns krafist Nýjast á mbl.is » Lionel Messi toppaði sjálfan sig Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Straumurinn hlýtur að liggja austur Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Leita enn að flutningavélinni Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nálgunarbanns krafist