Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.7.2026 | 19:10 Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Pétur G. Markan er nýr bæjarstjóri í Grindavík. mbl.is/Sigurður Bogi Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í Grindavíkurbæ klofnaði í afstöðu sinni til ráðningar Péturs G. Markan sem nýs bæjarstjóra á bæjarstjórnarfundi í gær. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, kaus með því að staðfesta ráðningarsamning Péturs og það gerðu einnig bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins og Miðflokksins. Hjálmar Hallgrímsson og Ómar Davíð Ólafsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sátu aftur á móti hjá. Ekki er eiginlegt meirihlutasamstarf til staðar í bænum heldur hafa flokkarnir þrír sem hlutu kjör í bænum ákveðið að vinna saman að uppbyggingu samfélagsins. Hefði viljað sjá annan umsækjanda ráðinn Pétur hefur nú tekið við sem bæjarstjóri og tekur hann við keflinu af Fannari Jónassyni, sem hafði verið bæjarstjóri frá árinu 2017. Áður hefur Pétur verið bæjarstjóri í Hveragerði og sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Hjálmar Hallgrímsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. mbl.is/Sigurður Bogi „Það er náttúrulega alveg greinilega ekki eining um ráðningu bæjarstjóra. Við vorum ekki alveg sammála um ráðninguna og það liggur alveg ljóst fyrir. Þar af leiðandi sitjum við bara hjá,“ segir Hjálmar, annar þeirra sem sat hjá, í samtali við mbl.is. Hjálmar hefði fremur viljað sjá annan umsækjanda ráðinn í starf bæjarstjóra næstu árin. „Það var möguleiki á öðru en það er bara eins og það er. Það var meiri hluti fyrir þessu þó við værum ekki sammála og þess vegna sátum við nú bara hjá,“ segir Hjálmar sem vill þó ekki gefa upp hvern af umsækjendunum 23 hann hefði viljað sjá ráðinn. Frétt af mbl.is 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Geta ekki verið að karpa um svona hluti Átt þú von á því að þessi ágreiningur muni lifa eitthvað inn í kjörtímabilið? „Við höfum bara miklu stærra verkefni fyrir höndum og höfum því ekki efni á því að vera að karpa um einhverja svona hluti. Það er bara áfram gakk og bara að vinna á fullu. Það er einhugur um að það að vinna að málefnum Grindavíkur,“ svarar Hjálmar. Að lokum segist Hjálmar vonast til þess að Pétur standi sig vel í starfinu, hann sé alla vega bjartsýnn og voni það besta. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Forstjóranum skipt út fyrir frönskumælandi mann Óvissa um leikskólastarf vegna þakleka Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Flak þotunnar fundið en áhafnarinnar saknað Lykilmenn æfðu ekki með enska landsliðinu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ótrúlegt að fullorðið fólk leggist gegn áformunum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nýjast á mbl.is » Forstjóranum skipt út fyrir frönskumælandi mann Óvissa um leikskólastarf vegna þakleka Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Flak þotunnar fundið en áhafnarinnar saknað Lykilmenn æfðu ekki með enska landsliðinu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk

Share this article