Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fleiri heimsmeistarar á Hólum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.7.2026 | 13:27 Fleiri heimsmeistarar á Hólum Ljósmynd/Mystery.horses Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Glæsihryssur í elsta flokknum „Einn besti hestur sem ég hef kynnst“ Kíkt á mannlífið á Landsmóti hestamanna Dalvar efstur í 6 vetra flokki Tinni frá Árdal slær heimsmet » Fleiri tengdar fréttir Veðrið leikur við landsmótsgesti á Hólum í Hjaltadal. Sólin skín, sýningin á hestunum er við bestu aðstæður og fólki fjölgar eftir því sem líður á vikuna en setningarathöfnin fer fram í kvöld og því er ekki of seint að drífa sig norður þar sem veðrið er best og stolt Íslendinga, hesturinn, er í aðalhlutverki. Atburðarásin er hröð og heimsmet Tinna frá Árdal stóð ekki lengi því Safír frá Laugardælum endaði þriðjudaginn með því að fara í 9,13 í aðaleinkunn, sem er hæsti dómur sem íslenskur hestur hefur hlotið frá upphafi dóma. Safír er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Skarti frá Laugardælum. Ræktandi er Malin Widarsson en eigendur eru Fákshólar ehf. og Anja Egger-Meier. Jakob Svavar Sigurðsson, einn eigandi Safírs, segir að þetta sé einn besti hestur sem hann hefur kynnst. „Þetta er alveg magnaður hestur og það gekk vel að sýna hann. Heilsteyptur karakter með allar gangtegundir frábærar, þannig að þetta er í raun allt í einum pakka og svo er hann gullfallegur líka.“ Jakob eignaðist hestinn þegar hann var á fimmta vetri. Hann varð strax vinsæll og hefur fengið gríðarlega notkun eftir það og hún minnkar væntanlega ekki núna. Jakob er með fleiri hesta í fremstu röð á mótinu og Kór frá Skálakoti heldur efsta sætinu með 8,96 í einkunn í milliriðlinum. Á eftir þeim koma Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Glódís Rún Sigurðardóttir með 8,81 og þriðju með sömu einkunn eru Hanna Rún Ingibergsdóttir og Hvarmur frá Brautarholti. „Kór er algjört orkubúnt, ofboðslega gangviss og rúmur, með mikla útgeislun og einstakan kraft.“ Jakob er spenntur fyrir forkeppni í tölti, sem fór fram í gærkvöldi, en þar mætir hann með Skarp frá Kýrholti sem er með næsthæstu einkunn inn á landsmótið á eftir Hlökk frá Strandarhöfði, en þeir urðu Íslandsmeistarar í tölti fyrir hálfum mánuði. Aspar með fjórar tíur Í öðru sæti í sjö vetra flokknum er Agnar frá Margrétarhofi með 8,81 í einkunn, sýndur af Þorgeiri Ólafssyni, og í þriðja sæti var Gauti frá Vöðlum með 8,79 í einkunn, sýndur af Teiti Árnasyni. Í fjórða sæti var svo Aspar frá Hjarðartúni með 8,70 í aðaleinkunn en hann hlaut 10 fyrir tölt, brokk, greitt stökk og hægt tölt. Sýndi tvær af efstu þremur Yfirlitssýningu á sjö vetra hryssum og eldri er lokið og stendur Sparta frá Eystra-Fróðholti efst með 8,94 í aðaleinkunn, sýnd af Jóni Ársæli Bergmann. Hún hækkaði fyrir fet á yfirlitinu og endaði með 9,35 fyrir hæfileika, sem er önnur hæsta hæfileikaeinkunn sem hross hefur hlotið. Önnur er Blíða frá Bergi með 8,92 í aðaleinkunn, sýnd af Þorgeiri Ólafssyni, og í þriðja sæti er Hetja frá Ragnheiðarstöðum með 8,85 í aðaleinkunn, einnig sýnd af Þorgeiri. Í þessum elsta flokki hlutu þrjár hryssur yfir 9,00 fyrir hæfileika, þær Sparta, Blíða og Seytla frá Íbishóli. Sparta hlaut 10,0 fyrir tölt, hægt tölt og samstarfsvilja. Seytla hlaut 10,0 fyrir hægt tölt og samstarfsvilja. Þrjár tíur í sex vetra flokknum Sex vetra hryssurnar mættu á yfirlitssýningu í gær og þrjár efstu hryssurnar héldu sínum sætum. Hugsýn frá Ketilsstöðum stendur enn efst með 8,91 í aðaleinkunn og 9,05 í hæfileikaeinkunn. Önnur er Melrós frá Hemlu II með 8,77 í aðaleinkunn og þriðja er Brynja frá Nýjabæ með 8,75 í aðaleinkunn. Bæði Hugsýn og Brynja hlutu 9,05 fyrir hæfileika. Hugsýn hlaut 10 fyrir samstarfsvilja, Nótt frá Tjaldhólum hlaut 10 fyrir tölt og Móna frá Þúfum hlaut 10 fyrir stökk. Veisla fyrir augað Besta veðrið um helgina verður fyrir norðan og Hólar í Hjaltadal standa svo sannarlega undir merki sem landsmótsstaður íslenska hestsins. Landsmótið er fjölskylduhátíð og fyrir þá sem vilja veislu fyrir augað verður helginni ekki betur varið en á landsmóti. Jakob Svavar Sigurðsson sýndi Safír frá Laugardælum, efsta hest í sjö vetra flokki og eldri. Hann stendur efstur í B-flokki eftir milliriðil með Kór frá Skálakoti. Í tölti er hann annar hæstur inn með Skarp frá Kýrholti. Aspar frá Hjarðartúni hlaut 10 fyrir tölt, brokk, greitt stökk og hægt tölt og er í fjórða sæti í sjö vetra flokknum. Hugsýn er efst með 9,05 í hæfileikaeinkunn. Skagafjörður Skín við sólu og Hólar taka vel á móti landsmótsgestum. Fyrir þá sem ekki eru búnir að ráðstafa helginni þá er valið auðvelt. Ljósmynd/Landsmót Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Glæsihryssur í elsta flokknum „Einn besti hestur sem ég hef kynnst“ Kíkt á mannlífið á Landsmóti hestamanna Dalvar efstur í 6 vetra flokki Tinni frá Árdal slær heimsmet » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Laugavegshlaupið á laugardag Mála tröppurnar aftur þegar veður leyfir Það geta allir orðið listamenn Skipti úr já-i í nei Fleiri heimsmeistarar á Hólum Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tjaldsvæðin fljót að fyllast fyrir austan Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Besta veðrið á Austurlandi Ótrúlegt að fullorðið fólk leggist gegn áformunum Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nýjast á mbl.is » Laugavegshlaupið á laugardag Mála tröppurnar aftur þegar veður leyfir Það geta allir orðið listamenn Skipti úr já-i í nei Fleiri heimsmeistarar á Hólum Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Besta veðrið á Austurlandi „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Kristrún leyst út með skammbyssu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli

Share this article