Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Rússland Njósnaskipið enn innan efnahagslögsögunnar Ragnhildur Helgadóttir Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er ennþá innan íslenskrar efnahagslögsögu og er statt norður af landinu. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Hann segir aðstæður svipaðar og síðast þegar sást til skipsins innan efnahagslögsögunnar í júní. Landhelgisgæslan fylgist áfram með ferðum Yuris Ivanov sem hefur verið innan efnahagslögsögunnar frá því í byrjun vikunnar. Landhelgisgæsla Íslands Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dómari neitar frávísun og hoppukastalamálið á leið í aðalmeðferð Hoppukastalamálið fer í aðalmeðferð að öllu óbreyttu, eftir að dómari hafnaði í dag frávísunarkröfu verjenda. Rúm fimm ár eru liðin frá slysinu. Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Namibía Þúsund Namibíumenn krefjast skaðabóta vegna Samherjamálsins Yfir þúsund manns sem segjast hafa orðið fyrir tjóni vegna atvinnu- og tekjumissis tengdum meintum mútugreiðslum Samherja í Namibíu vilja taka þátt í dómsmáli gegn fyrirtækinu á Íslandi ef af því verður. Fyrir 31 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Mér gengur ágætlega í lífinu þó að ég ljúgi stundum að sjálfri mér“ Tobba Marinós mælir með hollu fæði, grænmeti, harðfiski, samlokum og ætum jurtum á ferðalagi um landið. Stundum sé þó í lagi að grilla risasmákökur og verðlauna börnin með sykri. Fyrir 41 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Bíddu ha? „Metnaðarfull fyrsta plata“ Bíddu ha? er fyrsta stúdíóplata hljómsveitarinnar BKPM og hún var nýverið plata vikunnar á Rás 2. Karólína Einars Maríudóttir tónlistargagnrýnandi rýnir í plötuna. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ný brú yfir Breiðholtsbraut opnuð í fyrramálið Ný brú yfir Breiðholtsbraut verður opnuð í fyrramálið. Loka þarf Breiðholtsbraut í nótt á meðan undirbúningur fyrir tilfærslu umferðar stendur yfir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Búið að hreinsa málningu af tröppunum við Grafarvogskirkju Búið er að hreinsa málninguna af tröppunum framan við Grafarvogskirkju. Í fyrrinótt var íslenski fáninn málaður yfir regnbogafána sem prýddi tröppurnar við kirkjuna. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segja Bandaríkjaher hafa drepið 14 manns í árásum Átökin milli Írana og Bandaríkjanna stigmagnast enn. Bandaríkin gerðu árásir á landið í nótt. Þeim svöruðu Íranar með árásum á hernaðarlega innviði Bandaríkjanna í heimshlutanum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Þjóðverjar rekja um 5.000 dauðsföll til hitabylgju Dagný Hulda Erlendsdóttir Stjórnvöld í Þýskalandi áætla að 5.120 dauðsföll í landinu megi rekja til mikils hita, flest þeirra til hitabylgjunnar í júní. Þetta tilkynnti Robert Koch stofnunin í dag. Flestir hinna látnu voru eldri en 75 ára. Helgina 27. til 28. júní létust 120 manns í borginni Köln. Það eru fjórum sinnum fleiri dauðsföll en vanalega. Júní var sá hlýjasti í Vestur-Evrópu og sá næsthlýjasti á heimsvísu frá upphafi mælinga, samkvæmt evrópsku loftslagsstofnuninni Kóperníkusi. Hitabylgja geisaði í stórum hluta Evrópu dögum saman seinni hluta júní. Dauðsföllum í Belgíu fjölgaði um 39 prósent í hitabylgjunni og í Frakklandi um 29 prósent. Ferðamaður frá Kína í Frankfurt, sem huldi andlit sitt í hitabylgjunni í júní. Myndin var tekin 27. júní 2026. AP / Michael Probst Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Fannar leiðir hagræðingarteymi í Reykjanesbæ Fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur verður í fararbroddi nýs umbóta- og hagræðingarteymis hjá Reykjanesbæ. Markmiðið er að auka skilvirkni og bæta rekstur bæjarins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Þrisvar tilkynnt um fólk sem þóttist vera í dýraeftirliti fyrir MAST Þrisvar á síðustu fimm árum hefur MAST fengið tilkynningar um óprúttna aðila sem þykjast vera eftirlitsmenn stofnunarinnar. Þau hafa ekki kært málin til lögreglu, vegna skorts á sönnunargögnum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag HÆ veita aðhald í málefnum barna Ný hagsmunasamtök ætla að kortleggja þjónustu í málefnum barna og veita hinu opinbera aðhald frá loforði til framkvæmda. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Mannbjörg þegar bátur strandaði á skeri Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Betur fór en á horfðist þegar bátur með þremur mönnum innanborðs strandaði á skeri utan við Húsavík í morgun. Björgunarsveitin Garðar var kölluð út og fjórir félagar fóru á vettvang á björgunarbátnum Villa Páls. Í færslu björgunarsveitarinnar á Facebook segir að vel hafi gengið að koma bátnum á flot á ný og sigldi hann á eigin vélarafli til hafnar. „Betur fór en á horfðist og engin slys urðu á fólki,“ segir í færslunni. Mynd frá aðgerðunum. Facebook / Björgunarsveitin Garðar Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál SL og Almenni Lífsverk undirrita samning um sameiningu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður verða sá fjórði stærsti á landinu. Sjóðirnir tilkynntu í lok maí að þeir hefðu hafið sameiningarviðræður. Sameiningin er háð lagabreytingu en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur undirritun samrunasamnings sjóðanna í dag og undirritaði viljayfirlýsingu um að hann muni beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum verði sameiningin samþykkt. Aðsent Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Popúlistar og rasistar fái ekki að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir þjóðina ekki mega leyfa rasistum og popúlistum að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans. Hann hafi frá upphafi verið sameiningartákn þjóðar sem standi fyrir jafnrétti og mannréttindum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar hætta útflutningi á dísilolíu Mikill skortur er á eldsneyti í Rússlandi og stjórnvöld bönnuðu í gær útflutning á dísilolíu. Til stendur að flytja inn eldsneyti frá útlöndum. Skorturinn er til kominn vegna árása Úkraínumanna á olíuinnviði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Bláa lónið stóreykur eignarhlut sinn í þremur baðlónum Bláa lónið hf. hefur samið um að auka eignarhlut sinn í Norðurböðum. Eignarhluturinn hækkar því úr um þriðjungi yfir í rúm 80%. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Andlát Bonnie Tyler er látin Velska tónlistarkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Erdogan gaf Kristrúnu byssu Forsætisráðherra fékk skammbyssu að gjöf frá Tyrklandsforseta á leiðtogafundi NATO. Aðrir þjóðarleiðtogar fengu einnig byssur. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Aukakosningar gætu veikt stöðu Farage þótt hann eigi sigurinn vísan Það lítur ekki út fyrir að neinir frambjóðendur hinna hefðbundu flokka í breskum stjórnmálum bjóði sig fram gegn Nigel Farage í aukakosningum í ágúst. Þó hann eigi sigurinn vísan telja stjórnmálaskýrendur að útspil Farage geti veikt stöðu hans. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Helvítislirfan komin til Kaupmannahafnar Yfirvöld í Danmörku eru uggandi yfir útbreiðslu helvítislirfunnar svokölluðu. Hún fannst í fyrsta sinn í Kaupmannahöfn í gær. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Öflug hæð milli Íslands og Skotlands kemur með sumarið á Norðausturland Á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart og hiti að 25 stigum um helgina. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Ná Marokkómenn fram hefndum gegn Frökkum? 8-liða úrslit HM karla í fótbolta hefjast í dag þegar Marokkó og Frakkland eigast við. Leikurinn hefst 20:00 og verður í beinni á RÚV. Stofan hitar upp frá 19:30. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Olíuverð ekki verið hærra síðan um miðjan síðasta mánuð Grétar Þór Sigurðsson Heimsmarkaðsverð á olíu hefur tekið kipp eftir að Bandaríkin og Íran hófu að skiptast á árásum að nýju. Það hækkaði um 6% í gærmorgun. EPA / NYEIN CHAN NAING Olíuverð hækkaði um 1% við opnun markaða í Asíu í morgun. Verðið hefur þokast hratt upp á við eftir að árásir Bandaríkjanna og Írans hófust að nýju á þriðjudagskvöld, eftir árás Írana á flutningaskip í Hormússundi. Áhyggjur hafa vaknað af frekari truflunum á framboði olíu frá Mið-Austurlöndum. Tunnan af Brent-hráolíu kostaði 78,80 Bandaríkjadali við opnun markaða. Verðið er nú svipað og um miðjan síðasta mánuð, áður en Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu um frið. Donald Trump sagði í gær samkomulagið vera runnið út í sandinn. Verðið er þó enn langt frá þeim hæðum sem það náði við upphaf stríðsins þegar tunnan kostaði nærri 120 dali. 9. júlí 2026 kl. 4:18ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Hlýjasti júní frá upphafi mælinga í Vestur-Evrópu Meðalhiti í júní var rúmum þremur stigum yfir meðaltali áranna 1991–2020 í Vestur-Evrópu. Kröftug hitabylgja hafði veruleg áhrif á heilsu fjölda fólks og olli mikilli fjölgun dauðsfalla í álfunni. 9. júlí 2026 kl. 3:07ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar beina árásum á Bahrein og Kúveit Aðra nóttina í röð gera Bandaríkin og Íran gagnkvæmar árásir. Íranski byltingarvörðurinn hótar víðtækari árásum ef Bandaríkin halda áfram. Bandaríkjaforseti sagði í gær að samkomulag um vopnahlé væri runnið út í sandinn. 9. júlí 2026 kl. 1:24INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Sóttu kaldan og hrakinn ferðamann í Sveinsgil Ferðamaður sem lenti í hrakningum hafði samband við Neyðarlínuna. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sá manninn veifa vasaljósi þegar hún flaug yfir leitarsvæðið. 9. júlí 2026 kl. 0:44ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Tyrklandsforseti gaf leiðtogum NATO byssur Nafn fráfarandi forsætisráðherra Bretlands var grafið í byssu sem hann fékk að gjöf frá forseta Tyrklands. Allir þjóðarleiðtogar sem sóttu fundinn fengu sambærilega gjöf. 8. júlí 2026 kl. 23:53ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Justin Bieber stígur á svið í úrslitaleik HM Justin Bieber kemur fram í há