Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Eyþór vill aftur efsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Eyjum

  • What: Eyþór Harðarson, a council member in Vestmannaeyjar, is running again for the top position on the Independence Party's list for the upcoming municipal elections.
  • Impact: The Independence Party currently holds four of the nine seats in the town council.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eyþór vill aftur efsta sætið hjá Sjálf­stæð­is­flokkn­um í Eyjum Þorgils Jónsson Mynd / Aðsend Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, gefur aftur kost á sér í efsta sæti framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta segir hann í færslu á Facebook. Sjálfstæðisflokkurinn, sem er sem stendur með fjóra af níu fulltrúum í bæjarstjórn, heldur prófkjör 13. mars næstkomandi. Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Met­fjöldi í Hlíð­ar­fjalli: Lög­regla stýrir umferð Langar biðraðir hafa myndast á skíðasvæðinu í Hlíðarjalli á Akureyri og mikið fjölmenni er á svæðinu. Vetrarfrí í grunnskólum landsins eru lykilástæða að sögn forstöðumanns skíðasvæðisins. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul við­vör­un vega hríða­veð­urs á Suð­aust­ur­landi Vegagerðin varar við versnandi færð og skyggni í Mýrdal og á Mýrdalssandi í kvöld. Gul viðvörun hefur verið gefin út á Suðausturlandi og gildir til hádegis á morgun. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Vin­sæld­ir Mette-Marit hríð­falla í kjöl­far hneyksl­is­mála Norðmenn gefa Mette-Marit krónprinsessu falleinkunn í nýrri könnun um vinsældir norsku konungsfjölskyldunnar. Hún fékk meðaleinkunnina 7,4 í janúar en nú fær hún 3,7. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Dæmi um að fólk með óp­í­óða­fíkn hætti í með­ferð vegna komu­gjalda Dæmi eru um að fólk með ópíóðafíkn hætti í meðferð vegna 17 þúsund króna komugjalda á Vogi. Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, vill að heilbrigðisráðherra beiti sér í málinu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjötta gullið og fullt hús hjá Klæbo - Dagur hring­að­ur Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo sigraði í 50 km skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum í dag. Hann vann gullverðlaun í öllum sex keppnisgreinum sínum á leikunum. Dagur Benediktsson var meðal keppenda en var hringaður þegar rúmir 10 km voru eftir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Íbúar kjósa um sam­ein­ingu Ár­nes­hrepps og Kald­rana­nes­hrepps Sveitarstjórnir tveggja sveitarfélaga á Ströndum, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps, efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna gaf út álit þar sem segir að sameining sé vænlegur kostur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Forval hjá VG um helg­ina Góður gangur er í forvali Vinstri Grænna fyrir sæti á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Úrslit verða kynnt fyrir klukkan sex á morgun. Fjöldi félaga í Reykjavíkurfélagi VG jókst um fimmtung fyrir forvalið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Fór til Dan­merk­ur til að drepa tvo menn því hann vant­aði pening Maður sem ferðaðist frá Noregi til Danmerkur í því skyni að ráða tvo menn af dögum segist ekki vita hvers vegna þær urðu fyrir valinu. Hann hafi samþykkt að drepa mennina fyrir einstakling sem hann þekkti ekkert því hann vantaði pening. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Óum­flýj­an­legt að inn­heimta fast­eigna­gjöld í Grinda­vík – „Þetta er erfitt fyrir marga“ Fasteignagjöld voru innheimt í Grindavík í febrúar, eftir að hafa verið felld niður í tvö ár vegna jarðhræringa. Forseti bæjarstjórnar segir þörf á að fjármagna þjónustu innan bæjarins og er bjartsýn á framtíð Grindavíkur. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vara við stað­bund­inni hríð á Suð­ur­landi Hugrún Hannesdóttir Diego Búist er við talsverðum hríðarbyl í Mýrdal og á Mýrdalssandi í kvöld og í nótt. Vegagerðin varar við versnandi færð og skyggni á Hringveginum á þeim slóðum. Hríðin gæti varað þar til síðdegis á morgun. Varað er við versnandi færð og skyggni. Mynd tengist frétt ekki beint. RÚV / Kristín Sigurðardóttir Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Train­spott­ing 30 ára – Ekki aðeins saga um neyslu heldur vopn í menn­ing­ar­stríði Trainspotting var mikilvægt vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi við yfirstéttina í Bretlandi, segir ritstjóri menningartímarits sem gaf fyrstu kafla sögunnar út. 30 ár eru liðin síðan kvikmyndin var frumsýnd. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Panama Graf­hýsi talið varpa ljósi á líf frum­byggja Mið- og Suður-Am­er­íku Grafhýsi sem talið er vera frá árunum 800 til 1000 eftir okkar tímabil fannst nýlega við fornleifauppgröft í Panama. Þar getur að líta gull og leirker og er talið varpa frekara ljósi á líf frumbyggja fyrir nýlendutíma Spánverja. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Har­ald­ur Sig­urðs­son látinn Haraldur Sigurðsson, skemmtikraftur með meiru er látinn á 84. ári. Hann og Laddi bróðir hans voru eitt vinsælasta gríntvíeyki landsins um árabil. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram kalt í veðri Hugrún Hannesdóttir Diego Djúp lægð suðvestur í hafi þokast norðaustur og veldur hægt vaxandi austanátt í dag. Búist er við þurru og björtu veðri en dálitlum éljum austanlands. Austan kaldi síðdegis og skýjað með köflum en allhvasst eða hvasst syðst og stöku él þar. Í nótt komst frost niður í 10 til 15 stig og áfram verður kalt í veðri í dag. Dægursveifla hitans er hins vegar orðin það mikil að hiti nær sums staðar að skríða yfir frostmark sunnan heiða. Búist er við dálítilli slyddu eða snjókomu sunnanlands á morgun og 0 til 6 stiga frosti. Forst komst niður í 10 til 15 stig í nótt. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ung­verj­ar standa í vegi fyrir láni Evr­ópu­sam­bands­ins til Úkra­ínu Ungversk stjórnvöld segjast ekki ætla að samþykkja fyrirhugað 90 milljarða evra lán Evrópusambandsins til Úkraínu fyrr en stjórnvöld í Kyiv opni fyrir flutninga á rússneskri olíu til Ungverjalands. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL dagur 16: Dagur keppir í skíða­göngu og Klæbo getur unnið sjötta gullið Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo getur í dag unnið sjöttu gullverðlaun sín á Vetrarólympíuleikunum. Hann keppir þá í 50 km skíðagöngu klukkan tíu þar sem Dagur Benediktsson verður á meðal keppenda. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það sem verið að kjafta úti í bæ, mér gæti ekki verið meira sama“ „Ef ég ætlaði að velta fyrir mér hvað fólk segði um mig eða hvaða skoðanir það hefði á mér þá myndi ég ekki gera annað allan daginn,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn í an­n­ar­legu ástandi fyrir að bakka ít­rek­að á hús Markús Þ. Þórhallsson Ökumaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að tilkynnt var að hann hefði ítrekað bakkað bíl sínum á hús. Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Hann reyndist í mjög annarlegu ástandi að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og því vistaður í klefa. Lögreglan var kölluð til vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Þar var einnig maður handtekinn fyrir að brjóta rúðu í bifreið og annar fyrir akstur eftir göngugötu auk þess sem sá reyndist ökuréttindalaus. Mjög ölvaður maður var handtekinn í úthverfi þar sem hann gekk um og skemmdi farartæki. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ný skýrsla: Ungur maður drep­inn í að­gerð­um heima­varn­ar­ráðu­neyt­is fyrir ári Markús Þ. Þórhallsson Fulltrúi heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna skaut rúmlega tvítugan ríkisborgara til bana í Texas í mars á síðasta ári. CNN greinir frá. Ruben Ray Martinez var 23 ára þegar hann var skotinn til bana. AP/Rachel Reyes / Uncredited Nýútgefin skýrsla sýnir að Ruben Ray Martinez gæti hafa verið fyrstur af sex bandarískum ríkisborgurum sem drepnir hafa verið í tengslum við harðar aðgerðir Bandaríkjaforseta gegn innflytjendum í landinu. Martinez er sagður hafa verið stöðvaður við umferðareftirlit og heimavarnaráðuneytið staðhæfði í gær að hann hefði reynt að aka á lögreglumenn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Fram­kvæmda­stjóri FÍB segir verk­taka bera mikla ábyrgð varð­andi svifryks­mynd­un Framkvæmdastjóri FÍB segir verklag Vegagerðarinnar við rykhreinsun stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu fjarri viðmiðum á öðrum Norðurlöndum og lýðheilsumarkmiðum stjórnvalda. Jafnframt sé ábyrgð verktaka mikil því frá framkvæmdasvæðum berist mikið ryk. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tollar Trumps Nýir 10% tollar taka gildi næst­kom­andi þriðju­dag Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði í heimildarleysi lagt tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra. Hann hefur undirritað tilskipun um 10% alþjóðlega tolla. Búast má við löngum deilum um endurgreiðslur. 21. febrúar 2026 kl. 3:00INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Reikni­villa leiddi til rangs svars um hlut­fall ákærðra út­lend­inga Rangir útreikningar á gögnum dómsmálaráðuneytisins, mistök, leiddu til þess að ráðherra sagði hærra hlutfall erlendra borgara hafa verið ákært fyrir hegningarlagabrot en raun ber vitni. Svo virðist sem Morgunblaðið hafi fallið í sömu gryfju. 21. febrúar 2026 kl. 2:07MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Will­i­am Shatn­er boðar mikið stuð á eigin þung­a­rokks­plötu Leikarinn William Shatner boðar útgáfu þungarokksplötu á þessu ári þar sem hann sjálfur, í samstarfi við þekktar rokkstjörnur, flytur alþekkt lög auk nokkurra nýrra. Leikarinn er 94 ára og boðar heljarstuð á plötunni. 21. febrúar 2026 kl. 0:56ERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Minnst tólf drepin í árásum Ísra­els­hers Markús Þ. Þórhallsson Stjórnvöld í Líbanon segja tólf hafa verið drepna í loftárásum Ísraelshers á landið austan- og sunnanvert í gær og 24 hafa særst, þar af þrjú börn. Kona gengur framhjá húsum í flóttamannabúðum þar sem sjá má myndir af leiðtogum Írans og Hezbollah. EPA / WAEL HAMZEH Tíu týndu lífi í árásum á Bekaa-dal og tveir í stærstu flóttamannabúðum Palestínumanna nærri borginni Sidon. Herinn segist hafa beint atlögum sínum að stjórnstöðvum uppreisnarsveita Hamas annars vegar og Hezbollah hins vegar, sem segja háttsettan liðsmann hafa fallið. Ísraelsmenn gera iðulega árásir á Líbanon þrátt fyrir vopnahléssamkomulag frá nóvember 2024 sem ætlað var að stöðva átök við Hezb

Share this article