Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW Attacks RÚV

Leitaði til lögreglu eftir innbrot þriggja greifingja

  • What: Three raccoons entered a house through a cat door
  • Impact: No harm to people or animals
Read Full Article →

Lögreglan í Þrændalögum í Noregi fékk óvenjulegt símtal skömmu eftir miðnætti að norskum tíma í nótt. Örvæntingarfullur húseigandi í Þrándheimi óskaði aðstoðar eftir að þrír greifingjar gerðu sig heimankomna. Þeir höfðu komist inn í húsið í gegnum kattalúgu. Í frétt VG segir að ringulreið hafi ríkt meðal ferfættra íbúa hússins eftir heimsókn greifingjanna. Einn köttur flúði upp á eldhúsbekkinn en annar þaut út sömu leið og greifingjarnir komu inn, í gegnum kattalúguna. Húsráðandi leitaði skjóls í svefnherbergi. Það gerði hann vegna þess að einn greifinginn virtist ógnandi. Þetta segir Stian Martinssen Aalberg, aðgerðarstjóri hjá lögreglunni í Þrændalögum. Lögreglan hafði ekki tök á að senda mannskap á staðinn. Starfsmenn sérstakrar nefndar sem hefur eftirlit með dýralífi, viltnemnda upp á norsku, voru því kallaðir til og þeir fjarlægðu óboðnu gestina. Hvorki dýrum né mannfólki varð meint af.

Share this article